Fara í efni
Pistlar

Blak: HK hafði betur gegn KA í úrslitaleik

Það var HK sem stóð uppi sem bikarmeistari kvenna í blaki, eftir sigur á KA í dag. Mynd: volleyball.is/Mummi Lú.

KA mætti HK í dag í úrslitaleiknum í bikarkeppni kvenna í blaki, Kjörísbikarnum. KA hafði titil að verja en þurfti að sjá á eftir bikarnum í hendur HK-stúlkna, eftir 3:1 tap í skemmtilegum leik.

Leikið var í Digranesi í Kópavogi og var leikurinn í beinni útsendingu á RUV í líflegri lýsingu Sigurbjörns Árna Arngrímssonar. HK byrjaði leikinn talsvert betur og vann fyrstu hrinuna 25:17. Í næstu hrinu náði HK ágætu forskoti en KA-stúlkur gáfust ekki upp og söxuðu á forskotið. HK var hins vegar sterkara á lokassprettinum og innbyrti 25:20 sigur.

Herslumuninn vantaði til að knýja fram oddahrinu

Staðan var því orðin vænleg fyrir HK, 2:0 yfir og vantaði bara sigur í einni hrinu til að hampa bikarnum. En KA-stelpurnar voru ekki á þeim buxunum að gefa bikarinn eftir baráttulaust og minnkuðu muninn með öruggum 25:14 sigri í þriðju hrinu. Fjórða hrinan var sú mest spennandi og KA þurfti sigur í henni til að knýja fram oddahrinu. Hrinan var í járnum allan tímann og spennan var gríðarleg. KA var yfirleitt aðeins á undan en munurinn var aldrei mikill. Í stöðunni 19:19 náði HK að snúa hrinunni sér í hag og svo fór að þær kláruðu hrinuna 25:20 og unnu leikinn þar með 3:1. 

Þrátt fyrir að hafa lagt allt sitt í leikinn þurftu KA-stelpur að horfa á eftir bikarnum í hendurnar á HK, nokkrum dögum eftir að hafa séð á eftir deildarmeistaratitlinum í hendur þeirra. En sjálfur Íslandsmeistaratitillinn er ennþá í boði og ef að líkum lætur munu þessi lið mætast í úrslitunum um titilinn og næsta víst að KA hefur engan áhuga á því að horfa á eftir þeim bikar í Kópavoginn líka.

Nafnalágin

Jóhann Árelíuz skrifar
15. mars 2026 | kl. 06:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Birna berst líka við kerfið

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
13. mars 2026 | kl. 13:00

Gróður á lóðarmörkum

Sigurður Arnarson skrifar
11. mars 2026 | kl. 10:30

Drepfyndin óvissuferð hjá Leikfélagi Hörgdæla

Rakel Hinriksdóttir skrifar
10. mars 2026 | kl. 11:00

Flækjum ekki hlutina

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
10. mars 2026 | kl. 06:00