Fara í efni
Pistlar

Gríðarleg breyting og bylting fyrir KA

Stúkan við nýja Greifavöllinn á KA-svæðinu rúmar um 1000 manns og verður notuð í fyrsta skipti á mánudagskvöldið. Net eru komin í mörkin og eru að sjálfsögðu gul og blá! Myndir: Skapti Hallgrímsson

Á mánudagskvöld verður leikinn fyrsti heimaleikur KA í Bestu deild karla í fótbolta á nýjum velli félagsins þegar nágrannarnir í Þór koma í heimsókn. Gert er örstutt hlé á þeim miklu framkvæmdum sem standa yfir á félagssvæði KA til að leikurinn geti farið þar fram en Sævar Pétursson framkvæmdastjóri félagsins segir að svæðið eigi að vera endanlega tilbúið í júlí á næsta ári.

Stúkan við knattspyrnuvöllinn verður notuð í fyrsta skipti á leiknum en hún rúmar um eitt þúsund áhorfendur, reyndar nákvæmlega 998, að sögn Sævars sem fylgdi akureyri.net um svæðið og fór yfir allar þær breytingar sem eru í gangi.

Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, og Víðir Sigurðsson blaðamaður í stúkunni við nýjan keppnisvöll KA í gær. 

Undir nýju stúkunni verður m.a. fullkomin aðstaða fyrir lyftingar og á efri hæðinni í nýja félagsheimilinu, sem er að rísa á milli gamla KA-heimilisins og stúkunnar og mun tengja þetta allt saman í eina heild, verður fullkominn keppnissalur fyrir júdó, ásamt stórum fundarsal og aðstöðu til að fylgjast með leikjum á nýja vellinum. Búningsklefum fjölgar úr fjórum í tólf og Sævar sagði að aðgangurinn að vellinum frá búningsklefum, sem verða á neðri hæð félagsheimilisins væri hannaður með Framvöllinn í Úlfarsárdal í efri byggðum Reykjavíkur sem ákveðna fyrirmynd.

KA-svæðið iðaði af lífi í byrjun mánaðarins þegar N1 mótið í fótbolta fór fram. Nýi keppnisvöllurinn er neðst fyrir miðri mynd. Mynd: Þorgeir Baldursson

Opið svæði gefur marga möguleika

Þá verður stórt opið svæði framan við innganginn að nýja félagsheimilinu, sem snýr til norðurs, og verður með KA-íþróttahúsið til skjóls í austur og nýju stúkuna í vestur. Þar sagði Sævar að draumurinn væri að koma upp aðstöðu fyrir veitingar, þar sem fólk gæti komið og notið lífsins í mat og drykk áður en það færi í húsið eða á völlinn til að fylgjast með KA spila.

Á mánudagskvöldið munu leikmenn liðanna og dómarar ganga frá búningsklefunum í KA-heimilinu, í gegnum afmarkaða leið um neðri hæð nýja félagsheimilisins, og koma út á völlinn til hliðar við nýju stúkuna, á sama stað og þeir munu gera þegar framkvæmdunum verður lokið.

Hann er svoooona stór! Sævar og Víðir í júdósalnum – fullkomnum keppnissal – í nýja félagsheimilinu.

Þetta er bara handan við hornið

Sævar hefur verið framkvæmdastjóri KA frá árinu 2011 og m.a. upplifað í starfi flutning heimaleikja félagsins í fótboltanum frá Akureyrarvelli yfir á KA-svæðið, sem var á sínum tíma stórt verkefni. Hann sér nú fram á breytta tíma.

- Hvernig er að horfa yfir svæðið í dag og sjá að þetta sé allt að verða að veruleika?

„Það er bara rosalega gaman. Þetta er búið að vera í pípunum eiginlega síðan 2008 og nú erum við að sjá þennan leik gegn Þór í það minnsta verða að veruleika núna og þá sér maður að þetta er bara handan við hornið. Þetta er gríðarleg breyting og bylting fyrir KA að fá þessa umgjörð sem verður miklu, miklu betri en áður, hvort sem það er í búningsklefum, stúku, velli, veitingaaðstöðu, eða allri aðkomu gestaliða og gesta.“


Nú verður aðstaðan upp á tíu

- KA verður gjörbreytt félag með þessa aðstöðu, er ekki óhætt að segja það?

„Jú, svo sannarlega, og við erum félag sem er mikið í mótahaldi í fótbolta, handbolta og blaki þannig að þetta verður allt annað félag hvað það varðar að taka á móti gestum. Fyrir okkur sem félag, þá hafa verið miklir árekstrar milli iðkenda okkar vegna búningsklefa. Við höfum haft fjóra klefa síðan KA-heimilið var byggt árið 1991 og síðan þá hefur þetta breyst heilmikið, bæði hvað varðar inniíþróttir og útiíþróttir sem eru nú stundaðar allt árið um kring, og svo hefur iðkendum fjölgað gríðarlega.

Núna verðum við með aðstöðu til að taka á móti okkar iðkendum í búningsklefum og gestum, og aukið alla umgjörð í kringum okkar leiki, hvort sem um er að ræða leiki í 5. flokki eða meistaraflokki.“

Bæði Súlur og Hlíðarfjall blasa við úr nýju áhorfendastúkunni.

- Stóru mótin ykkar eru áberandi, N1-mótin á sumrin og stór fjölliðamót á veturna. Það verður væntanlega allt annað mál að halda þau?

„Já, þetta gerbreytir öllu þar. Við erum alltaf að redda hlutunum fyrir horn síðustu tvær vikurnar fyrir hvert mót, setja upp bráðabirgðaaðstöðu, koma fyrir tjöldum, græja og gera. Nú verður aðstaðan upp á tíu til að taka á móti fólkinu sem fylgir krökkunum á mótin og upplifun allra ætti að vera betri og skemmtilegri fyrir vikið.“

Seljum hamborgara í skógeymslunni

- Hversu mikil stækkun og breyting verður að fara úr KA-heimilinu eins og það hefur verið til þessa og yfir í nýtt félagsheimili ásamt glæsilegri stúku við fótboltavöllinn?

„Þetta leysir af hólmi núverandi félagsaðstöðu og þegar allt verður komið í notkun í nýja hlutanum verða bara skrifstofur í gamla KA-heimilinu. KA-salurinn sjálfur verður óbreyttur en aðstaðan í dag er þannig að við erum að reyna að selja miða og selja hamborgara á heimaleikjum í handbolta í skógeymslunni. Eftir þessa breytingu verðum við á allt öðrum stað. Við getum tekið á móti fjölda fólks í sæti og við borð, sem ekki er hægt í dag. Það er himinn og haf á milli þess sem er í dag og þess sem verður þegar framkvæmdum verður lokið.“

Stórt opið svæðið er á milli íþróttahúss KA og nýju áhorfendastúkunnar. Inngangurinn í nýja félagsheimilið snýr til norðurs; verður fyrir miðri mynd, þar sem appelsínuguli kraninn stendur.

Afhent fullbúið í júlí 2027

- Hvenær sjáum við nýja KA-svæðið fullbúið?

„Það verður í júlí 2027 en það er hins vegar ekkert launungarmál að við sem félag höfum haft það á bak við eyrað að KA verður 100 ára 2028 og á hundrað ára afmælinu viljum við vera mjög stolt af svæðinu okkar. Það verður því eflaust eitt og annað sem teygist yfir á árið 2028 en verktakinn sem vinnur hér hörðum höndum á að skila mannvirkinu fullbúnu til okkar í júlí 2027 með öllum klefum, bílastæðum og öðru tilheyrandi.“

Eiga mikið hrós skilið

- Þið hafið stefnt að því lengi að heimaleikurinn gegn Þór í Bestu deildinni fari fram á nýja vellinum og stúkan yrði tilbúin fyrir hann. Það er orðið að veruleika en stóð það tæpt?

„Ja, er það ekki leið okkar Íslendinga að það sem á að vera tilbúið sex vikum fyrir ákveðinn viðburð, gerist á síðustu sex dögunum? En verktakinn okkar, Húsheild/Hyrna, fær mikið hrós fyrir það sem þeir hafa lagt að mörkum síðustu daga til þess að þetta yrði að veruleika. Aðstaðan á þessum leik verður til fyrirmyndar og við munum sjá fullan völl á mánudagskvöldið, líka allt í kringum völlinn ef út í það er farið, og hér verður alvöru bæjarslagur þegar KA og Þór mætast.“


Verktakarnir þurfa vinnufrið

- Þið lögðuð áherslu á að spila þennan leik á nýja vellinum en svo er óvíst hvort það verði spilað aftur á honum fyrr en næsta vor. Hvers vegna er það?

„Þetta er eini staðfesti leikurinn. Við eigum eftir að sjá hvað verður með síðustu heimaleikina í haust. Þetta er fyrst og fremst til þess að við séum ekki að stöðva verktakana í þeirra vinnu. Þeir eru með vinnuvélar og krana á svæðinu, eru að vinna í mannvirkjunum á fullu, og það er ekki hægt að ætlast til þess að þeir leggi alltaf niður störf þegar okkur langar til að vera með einn fótboltaleik.

Við verðum að virða það við þá, þeir eru ekki búnir að skila af sér verkinu, en við erum þakklátir þeim fyrir að hleypa okkur inn í þennan stóra leik. Við munum þá spila heimaleikina sem eftir eru á Greifavellinum þar sem allir leikir hafa farið fram síðustu fimm ár.“


Væri gaman að fá kvöldleik í myrkrinu

„Næsta vor flytjum við alfarið yfir á nýja völlinn en það væri rosalega gaman að fá einn til tvo heimaleiki í haust þar sem við myndum sjá völlinn með fullri flóðlýsingu í myrkrinu. Við höfum hingað til þurft að spila haustleikina klukkan tvö á sunnudegi, eða eitthvað slíkt, og það væri virkilega gaman að fá kvöldleik í haust til að sjá hvað völlurinn býður upp á.

Þá myndum við sjá völlinn í því ljósi, með flóðlýsingu og hvernig hann kæmi út. Eins væri þægilegra fyrir áhorfendur að komast undir þakið á nýju stúkunni þegar haustlægðirnar eru skollnar á. En við sjáum til hvernig verkstaðan verður hjá verktakanum í september og október.“

Sævar Pétursson í nýju áhorfendastúkunni. „Bæði lið koma í þennan leik með kassann úti og vilja vera stóri bróðir í bænum og hafa montréttinn, eins og maður segir. Það að liðin séu í botnbaráttu er vissulega olía á eldinn og ég held að það verði til þess að auka spennuna enn frekar,“ segir hann um leik KA og Þórs á mánudaginn.

Bæjarfélagið er nánast undir

- Svo er það leikurinn sjálfur, það er alltaf slagur þegar KA og Þór mætast, og nú eru liðin bæði í viðkvæmri stöðu í botnbaráttu deildarinnar. Hvaða áhrif hefur það á leikinn á mánudagskvöldið?

„Já, það er að sjálfsögðu aukakrydd fyrir leikinn en það hefur hingað til ekki skipt máli í hvaða stöðu liðin eru þegar þau mætast. Bæði lið koma í þennan leik með kassann úti og vilja vera stóri bróðir í bænum og hafa montréttinn, eins og maður segir. Það að liðin séu í botnbaráttu er vissulega olía á eldinn og ég held að það verði til þess að auka spennuna enn frekar. Ég held að þú munir finna það 15 mínútum fyrir leik að andrúmsloftið verður þrungið á vellinum, og við sem erum á bak við þessi lið, bæði KA og Þór, verðum líklega byrjuð að kúgast af stressi og ónotum strax á laugardag!

En á sama tíma eru þetta leikirnir sem maður vill sjá, þeir gera gríðarlega mikið fyrir leikmennina og þjálfarana, að taka þátt í svona leik þar sem allt er undir og fullt af fólki á vellinum. Bæjarfélagið er nánast undir. Þetta hljóta að vera leikir sem allir alvöru íþróttamenn vilja taka þátt í.“

Mikil læti og mikil stemning

- Við sáum einn svona leik á Þórsvellinum í vor!

„Já, heldur betur og þú fannst andrúmsloftið þar. Það var kannski ekki besti fótboltaleikurinn en allir leikmenn í báðum liðum skildu allt eftir á vellinum. Mikið af aukaspyrnum og mikil læti sem mun alltaf fylgja þessum nágrannaslag, sama hvar liðin eru stödd. Það verða mikil læti og mikil stemning hérna á mánudagskvöldið!“ sagði Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA.  

Eyðum tómlæti í garð Hámundar heljarskinns!

Orri Páll Ormarsson skrifar
24. júlí 2026 | kl. 06:00

Áhrif ísaldar á gráelrideildina

Sigurður Arnarson skrifar
22. júlí 2026 | kl. 12:30

Hafþyrnir - Hinn þyrnótti hestaljómi

Sigurður Arnarson skrifar
15. júlí 2026 | kl. 11:30

Hús dagsins: Sigtún; eldra íbúðarhús

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
14. júlí 2026 | kl. 09:00

Þarf sumarið að vera fullkomið?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
14. júlí 2026 | kl. 06:00

Er hægt að spila fótbolta svona?

Orri Páll Ormarsson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 11:00