Fara í efni
Pistlar

Ferðafélag Akureyrar 90 ára

Ferðafélag Akureyrar (FFA) var stofnað árið 1936 og verður 90 ára þann 8. apríl næstkomandi. Haldið verður upp á tímamótin með ýmsum hætti, svo sem fyrirlestrum, skráningu gönguleiða, afmæliskaffi í skála félagsins í Drekagili næstkomandi sumar, og greinum hér á akureyri.net.

FFA er áhugamannafélag um útivist sem vill stuðla að hreyfingu og ferðalögum á Íslandi, einkum Norðurlandi og er fjölmennasta deildin innan Ferðafélags Íslands. Í félaginu starfar fjöldi nefnda í kringum verkefni sem unnin eru í félaginu. Félögum hefur fjölgað mikið á síðustu árum og eru núna um 700 talsins.

Gönguhópur á leið á Draflastaðafjall, Súlur, Kerling og Glerárdalur í bakgrunni.

Félagið skipuleggur ferðir og gefur út ferðaáætlun fyrir hvert ár, þar á meðal veglega gönguviku í júní. Tugir ferða eru á dagskrá, styttri jafnt sem lengri ferðir við allra hæfi. Auk þess býður félagið upp á ýmiss konar hreyfihópa og námskeið. Starfsemi, ferðaáætlun og aðra viðburði má kynna sér á nýrri heimasíðu félagsins.

Byggðir hafa verið upp fjallaskálar við Eyjafjörð og á Ódáðahraunssvæðinu og er rekstur skálanna veigamikill þáttur í starfi félagsins en alls á félagið og rekur þrjá stærri skála eða skálasvæði og fjóra minni gönguskála. Skálarnir eru í aldursröð Laugafell, Þorsteinsskáli í Herðubreiðarlindum, Dreki við Öskju, Lambi á Glerárdal, Bræðrafell í Ódáðahrauni, Dyngjufell í Dyngjufjalladal og Botni í Suðurárbotnum. Flestir eldri skálarnir hafa verið endurbyggðir og húsakostur aukinn á svæðunum í gegnum árin. Sérstaklega á þetta við um hálendismiðstöðvarnar Dreka og Laugafell. Megin þungi gistinga á vegum félagsins er í Dreka en var á árum áður í Herðubreiðarlindum. Öll vinna í kringum skálana er unnin í sjálfboðaliðavinnu nema skálavarsla.

Skíðagönguhópur á svokallaðri Botnaleið milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. Héðinsfjörður fyrir miðri mynd.

Skrifstofa félagsins er að Strandgötu 23 og þar er félagsheimili sem rúmar fundi og minni samkomur. Á veturna eru þar reglulega haldin fræðslukvöld á fimmtudögum sem eru jafnan vel sótt.

Félagið gefur árlega út ritið Ferðir sem hefur komið út nær óslitið síðan 1940. Á næstu vikum áformar afmælisnefnd félagsins að birta hluta úr greinum sem ritaðar hafa verið í Ferðir í gegnum árin hér á síðum akureyri.net. Efni Ferða er fjölbreytt, þar er saga félagsins og starfsemi frá ári til árs skrásett og ýmiss fróðleikur gerður aðgengilegur á borð við staðháttalýsingar, ferðasögur, lýsingar á ferðaleiðum og svo framvegis. Sumt af þessu á fullt erindi við okkur enn í dag meðan annað hefur síður staðist tímans tönn.

Við erum stolt af þessu afmælisbarni sem ber aldurinn einkar vel og hefur eflst og styrktst með hverju árinu. Í gegnum félagið hefur fólk bundist tryggðarböndum fyrir lífstíð, notið endurnærandi ferðalaga um landið og öðlast þekkingu á landinu okkar.

Hjalti Jóhannesson er í ritnefnd Ferða og í afmælisnefnd vegna 90 ára afmælis Ferðafélags Akureyrar.

 

Á Hlíðarfjallsbrún haustið 2025, vestan leiðindaveður að skella á gönguhópnum.


Sigurveig Árnadóttir, jarðfræðingur segir gönguhópi frá jarðfræði Villingadals.

Herðubreið, sjaldgæft sjónarhorn af toppi Kollóttudyngju.

Hringir maður bara í Bjarna Fel?

Orri Páll Ormarsson skrifar
06. febrúar 2026 | kl. 06:00

Krossnefur og frændur hans

Sigurður Arnarson skrifar
04. febrúar 2026 | kl. 20:00

Hús dagsins: Lækjargata 3

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
02. febrúar 2026 | kl. 17:30

Heiðaharmur

Jóhann Árelíuz skrifar
01. febrúar 2026 | kl. 06:00

Af hverju hanga greinar hengibjarka?

Sigurður Arnarson skrifar
28. janúar 2026 | kl. 11:00

Hárkolluvillan: Af Tyrklandsferðum og gervigreind

Magnús Smári Smárason skrifar
28. janúar 2026 | kl. 10:00