Vistkerfisþjónusta
TRÉ VIKUNNAR - 151
Pistill í röðinni Tré vikunnar birtist vikulega á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga, alla miðvikudaga. Akureyri.net birtir brot úr hverjum pistli til að vekja athygli á skrifunum og hvetur fólk til að lesa meira á vefsíðu félagsins.
_ _ _


Allt þetta og svo miklu meira er hluti af vistkerfisþjónustu skógarins. Sömu eða svipaða sögu er hægt að segja úr öllum ellefu reitum félagsins og reyndar flestöllum skógarreitum landsins ef út í það er farið.
Þótt þetta sé hluti af því sem skógurinn hefur uppá að bjóða er þetta svo léttvægt á vogarskálum þjóðhagsreikninga að þetta kemur hvergi fram í þeim.
Í þessari viku beinum við sjónum okkar að vistþjónustu skóga. Við nýtum öll ýmiss konar þjónustu sem vistkerfi náttúrunnar veita. Fyrir utan það sem nefnt er hér að ofan má nefna náttúruauðlindir og ýmis náttúruleg ferli. Þetta er það sem við köllum þjónustu vistkerfa. Mikilvægt er skerða ekki lífsgæði fjöldans með því að fórna vistþjónustu fyrir stundarhagsmuni fárra. Þjónustan er ómissandi fyrir okkur öll enda byggist afkoma mannkyns á náttúruauðlindum. Rétt er að halda því til haga að skógurinn sjálfur hefur engan sérstakan áhuga á því hvort eða hvernig hann getur þjónað okkur. Það verður því að teljast ákaflega mannhverf hugsun að tala um vistkerfisþjónustu. En ef til vill hjálpar þetta hugtak okkur að skilja betur hversu mikilvæg náttúran er út frá okkar sjónarhóli og fyrir okkur. Þegar við fórnum hlutum hennar bitnar það að endingu á okkur sjálfum.


Myndir úr ljósaskiptagöngu í Garðsárreit haustið 2025. Þar voru heimsmálin krufin við varðeldinn þegar myrkrið færðist yfir. Myndir: Ingólfur Jóhannsson.
Hnignun vistkerfa heima og á heimsvísu
Síðastliðna hálfa öld hefur maðurinn valdið sífellt hraðari og víðtækari breytingum á vistkerfum jarðar. Stærra og stærra land fer undir vegi, bæi og borgir. Jafnvel á svæðum þar sem ekki er nein fólksfjölgun virðast bæir og borgir stækka með auknu álagi á umhverfið.
Margir þættir valda álagi og breytingum á vistkerfum. Má meðal annars nefna tilraunir til að afla fæðu, ferskvatns, viðar, trefja og eldsneytis fyrir tegundina sem telur sig vitiborna. Þetta hefur leitt til umtalsverðra breytinga á líffjölbreytni sem að meginhluta eru óafturkræfar. Vistkerfum hefur hnignað, bæði til lands og sjávar, en oft er hnignunin það hæg að við tökum ekki eftir henni.

Breytingar á vistkerfum hafa í mörgum tilfellum bætt velferð og efnahag manna. Að minnsta kosti sumra þeirra. Ávinningurinn kostar sitt en kostnaðarins er sjaldnast getið. Ef ekki verður breyting á getur þessi þróun á heimsvísu aukið fátækt og vanlíðan hjá vissum hópum. Reyndar hefur það raungerst víða um heiminn. Græðgin mun draga umtalsvert úr þeirri þjónustu sem komandi kynslóðir geta notið frá vistkerfum jarðar. Vistkerfum heimsins hefur víðast hvar hrakað eins og við þekkjum svo vel á Íslandi. Þjóðin lifði en skógurinn dó.
Meira á vef Skógræktarfélagsins. Smellið hér til að sjá allan pistilinn
Fjalla-Eyvindur og Halla
Glerárdalur
Hringir maður bara í Bjarna Fel?
Ferðafélag Akureyrar 90 ára