Fara í efni
Pistlar

Uss í görðum

EYRARPÚKINN - 34

Maðurinn með hattinnborgar ekki skattinn

sungum við og splundruðum ljósaperunni á horni Ægisgötu og Eyrarvegs.

Stendur upp við staurinnog á engan aurinn

og líktist Eyrin kolaborg á Bretlandseyjum undir loftárásum Hitlers.

Flengdumst áfram Eyrarpúkar með vírskot í steinaboga og guðsmildi að ekki hlutust stórslys af. Einn fékk ör í auga og missti og fátt sárara í rass og læri en vírskot af stuttu færi. Drullusokkar læddu steinum og vírskotum í snjókúlur og var illa þokkað.

Svo kom Svarta María dólandi og voru málin rædd í bróðerni við hettumáfa. Skítt með ljósleysið, örugglega þorparar á ferð. Hjalað við Palla Rist og Gunna Randvers sem vissu sem var en gátu ekki sannað það og reyndu að koma okkur að óvörum en djúpgrænn Doddsinn seinn til og velþekkt vélarhljóðið. Kannski hafði Hreiðar hringt.

Fórum Eyrina púkar með hnífa og axir í belti og baunarör á haustin en vopnuðumst sverðum og spjótum á fjölmennari samkomum. Einhverjir áttu startbyssur og loftriffli brá fyrir.

Var ég lúnkinn að bauna lúsaberjum á stóru strákana undir verndarvæng Þormóðs og þegar Jón Dan og félagar höfðu í hótunum við Nonna og Júnna við girðinguna Ægisgötumegin kastaði ég mér niður og skaut í andlit Jóns Dans að hætti Ragnars Jónssonar og kom Jóni Dani í opna skjöldu og féllust honum hendur enda spéhræddur á kynþroskastigi.

Septemberkvöldin fylltu hróp og sköll Eyrina en skuggar stukku ussandi um garða í leit að æti og hasar.

Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.

  • Uss í görðum er kafli úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003.

Fjandafæla, sokkapör og rósakrans

Jóhann Árelíuz skrifar
23. ágúst 2026 | kl. 06:00

Við elskum þessar mellur

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
22. ágúst 2026 | kl. 06:00

„Lucy, hún er löngu dauð!“

Orri Páll Ormarsson skrifar
21. ágúst 2026 | kl. 14:00

Hin hollu ber hafþyrnis

Sigurður Arnarson skrifar
19. ágúst 2026 | kl. 10:20

Hús dagsins: Háagerði/Syðri-Tjarnir

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
18. ágúst 2026 | kl. 09:30

Ævispor

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
18. ágúst 2026 | kl. 09:00