Fara í efni
Pistlar

Frá Búastöðum í Borgir

EYRARPÚKINN - 90

Það voru erfiðir flutningar yfir ár og fell og mýrar, rigndi líkt og á Jótlandsheiðum og lá nærri að hundarnir hættu að gelta.
 
Það voru búferlaflutningar foreldra minna frá Búastöðum í Vesturárdal upp í Borgir í Sunnudal og var pabbi allur blár á handleggjunum eftir virkisburð.
 
Hvað flutturðu á mörgum spyr afi Sigmundur sem var staddur á Borgum.
 
Tuttugu hestum svaraði pabbi.
 
Jæja Einar minn sagði Sigmundur, þegar ég flutti úr Jökuldalnum í Hvammsgerði átti ég bara á einn hest.
 
Pabbi hafði viðað að sér í Viðvík og víðar og skildi Af því áttu fátt að þú nýtir ekki smátt engu síður en tengdafaðirinn.
 
Pabba dreymdi um vænt fé á grænni beit grösugra lenda inn af Borgum, nú þurfti að húsa upp!
 

Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.

    • Á sunnudögum um langa hríð birti akureyri.net kafla úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki Jóhanns Árelíuzar sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003. Frá Búastöðum í Borgir er kafli úr bókinni Sveskjur í sólarlaginu, síðari bók Jóhanns um Eyrarpúkann en þar segir einkum frá dvöl drengsins á æskuslóðum föður hans í Vopnafirði. Bókin kom út 2010.

Hús dagsins: Norðurgata 33

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
25. október 2026 | kl. 21:00

Beitarkóngur á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
25. október 2026 | kl. 06:00

Ber í skógi

Sigurður Arnarson skrifar
21. október 2026 | kl. 12:00

Nokkur ráð til að líða betur í skammdeginu

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
20. október 2026 | kl. 12:00

Skáldkonan á Ljósavatni

Jóhann Árelíuz skrifar
18. október 2026 | kl. 10:00

Að vera góður (með sig)

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
17. október 2026 | kl. 11:00