Fara í efni
Pistlar

Dottið í Hofsárhyl

EYRARPÚKINN - 87

Pabbi og Sveinn Árnason voru að ferja hey austan af Hofsborgartungu að vorlagi og settu ferjuna inn í hyl til að ná landi hinumegin en þegar ferjan flýgur af stað undir strengnum verður pabba gripið í kaðalinn og flýgur ferjan áfram en pabbi verður eftir hangandi í strengnum og dettur í hylinn.
 
Pabbi var í kápu með stóru vösum og hélst loft í vösunum og bregður Sveinn á það ráð að setja ferjuna nógu innarlega og krækti í stærsta vasa pabba og munaði minnstu að báðir færust fyrir vikið.
 
Dröslaði Sveinn pabba upp á bakkann og virtist hann dauður en nafni hans séra Einar lífgaði hann við.
 
Síðar sagði pabbi að sér hefði liðið svo vel að hann hefði verið tvíátta um lífgun en þó óþægilegt að drekka fyrstu sopana enda sagt að sætur sé sjávardauði.
 

Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.

    • Á sunnudögum um langa hríð birti akureyri.net kafla úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki Jóhanns Árelíuzar sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003. Dottið í Hofsárhyl er kafli úr bókinni Sveskjur í sólarlaginu, síðari bók Jóhanns um Eyrarpúkann en þar segir einkum frá dvöl drengsins á æskuslóðum föður hans í Vopnafirði. Bókin kom út 2010.

Hús dagsins: Knarrarberg

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
07. september 2026 | kl. 02:00

Jól á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
06. september 2026 | kl. 06:00

Einfaldir karlmenn

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
05. september 2026 | kl. 06:00

Nemendur teknir sturlungatökum

Orri Páll Ormarsson skrifar
04. september 2026 | kl. 15:30

Þvættingur

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
04. september 2026 | kl. 12:00

Hvenær teljast tré dauð? Lífið finnur sér leið

Sigurður Arnarson skrifar
02. september 2026 | kl. 09:20