Þróun skógarbotnsins
TRÉ VIKUNNAR - 154
Pistill í röðinni Tré vikunnar birtist vikulega á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga, alla miðvikudaga. Akureyri.net birtir brot úr hverjum pistli til að vekja athygli á skrifunum og hvetur fólk til að lesa meira á vefsíðu félagsins.
_ _ _

Yfirlit
Þetta er fyrsti pistill okkar um skógarbotninn í íslenskum skógum. Í þessum pistli byrjum við á að nefna að flestir skógar á Íslandi eru enn ungir að árum og þeir þekja mjög lítinn hluta landsins. Að auki hefur landnýtingin verið ósjálfbær í margar aldir. Allt leggst þetta á sömu sveifina. Í íslenskum skógum vantar víða hefðbundnar skógarbotnsplöntur nema helst í gömlum birkiskógum. Skógarbotn íslenskra skóga er mjög langt frá því að vera að fullu mótaður. Í pistlinum er fjallað um hvaða þættir hafa áhrif á útlit skógarbotnsins. Sagt er frá því að miklu máli skiptir hvers konar land er tekið til skógræktar og hvernig ástand þess er þegar spáð er fyrir um hvaða gróður muni prýða skógarbotninn í fyllingu tímansmuni. Fáar plöntur, sem finna má í rýru og skjóllitlu landi, þrífast vel í skógarskjóli en öðru máli gegnir um margar tegundir sem finna má í frjósömu landi. Við segjum frá því að skóginum megi skipta í nokkur lög og leggjum auðvitað áherslu á botngróðurinn. Fjölbreytni í skógarbotninum getur aukið bæði frjósemi og seiglu skóganna og eykur bæði líffjölbreytni og útivistargildi þeirra. Því mætti gjarnan huga meira að þessum þætti íslenskra skóga. Í þessum pistli segjum við frá ýmsum skógarbotnsplöntum og sýnum af þeim myndir en í næsta pistli segjum við frá ýmsum plöntuhópum sem finnast í skógarbotninum og hvernig þróunin hefur lagað þær að lífinu í skógarskjólinu.

Stærð skóga
Segja má að á Íslandi hafi skógrækt hafist fyrir um tylft áratuga. Þá var landið víða mjög illa farið eins og við þekkjum. Árangurinn er sá að nú eru um 2% landsins vaxið skógi. Þar af er um 1,5% vaxið birkiskógi og birkikjarri sem við teljum alltaf með til að hækka prósentutöluna. Ef við tökum mark á alþjóðlegum viðmiðum, sem krefjast þess að tré verði að minnsta kosti 5 metra há til að hægt sé að tala um skóga, þá lækkar talan yfir skóga landsins umtalsvert. Þetta merkir að mjög takmarkaður hluti landsins er þakinn þroskuðum skógarvistkerfum. Má jafnvel segja að enn séu íslensk skógarvistkerfi í byrjunarfasa. Allt horfir þetta til bóta. Á síðastliðnum áratug var skógrækt upphaflega í talsverðri lægð en hefur aukist á síðustu árum. Má ætla að meðalgróðursetning tímabilsins sé á bilinu fjórar til fimm milljónir plantna á ári.

Skógarbotn að hausti í grisjuðum greniskógi, Picea spp., í Haukadal. Mynd: Pétur Halldórsson.
Meira á vef Skógræktarfélagsins. Smellið hér til að sjá allan pistilinn
Hús dagsins: Lundargata 9
Innra með okkur öllum er Birtíngur
Evrópskt gráelri - Fyrsti hluti
Við getum gert „allt“ … en ekki „allt á sama tíma“