Samanburður broddhlyns og garðahlyns
TRÉ VIKUNNAR - 186
Pistill í röðinni Tré vikunnar birtist vikulega á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga, alla miðvikudaga. Akureyri.net birtir brot úr hverjum pistli til að vekja athygli á skrifunum og hvetur fólk til að lesa meira á vefsíðu félagsins.
_ _ _
Björgvin Steindórsson var forstöðumaður Lystigarðs Akureyrar frá 1997 og þar til hann lést eftir erfið veikindi aðeins 61 árs að aldri árið 2016. Björgvin var alltaf í vinnunni og arfleifð hans lifir í garðinum. Björgvin tók fjölda mynda af trjám og allskonar gróðri á ferðalögum sínum heima og í útlöndum, í Lystigarðinum og í eigin garði. Fyrir andlát sitt merkti hann flestar myndirnar og flokkaði. Ekkja hans, Anna Rebekka Hermannsdóttir, hefur veitt okkur aðgang að þessu stóra myndasafni sem við lítum á sem mikinn fjársjóð. Í safninu er einnig að finna stuttar lýsingar á mörgum ættkvíslum og tegundum sem Björgvin hafði skráð hjá sér.
Þessi pistill byggir að mestu á einu slíku skjali. Þar ber hann saman þær tvær tegundir hlyntrjáa sem mest eru ræktaðar á Íslandi. Aðrar tegundir ættkvíslarinnar sem hér eru ræktaðar teljast frekar til runna en trjáa þótt það kunni að breytast í framtíðinni.
Okkur er sérstök ánægja af að birta þessar athugasemdir til að auðvelda almenningi að bera tegundirnar saman. Við höfum bætt við smávægilegum upplýsingum án þess að við hirðum um að geta hvað sé frá honum komið og hvað frá okkur. Meirihlutinn er þó frá honum kominn. Hitt er bara til uppfyllingar.

Tegundirnar
Tegundirnar tvær sem um ræðir eru garðahlynur, Acer pseudoplatanus L., og broddhlynur, A. platanoides L. Tegundirnar eiga sitthvað sameiginlegt. Fyrir það fyrsta má nefna að allar hlyntegundir hafa gagnstæð blöð. Blöðin á báðum tegundum minna á lauf platanviða, Platanus, og bera báðar fræðiheiti sem vísa í það. Pseudoplatanus er sett saman úr orðunum pseudo og platanus. Hið fyrra merkir gervi, falskur, plat eða eitthvað slíkt. Því merkir fræðiheitið gerviplatanviður, platplatan, eða eitthvað álíka.

Platanoides vísar einnig í platanviði. Viðskeytið er notað yfir eitthvað sem er líkt. Fræðiheitið getur því merkt platanlíki.
Annað sem tegundirnar eiga sameiginlegt er að það var hinn sænski grasafræðingur Carl von Linné (1707 – 1778) sem lýsti tegundunum fyrst af grasafræðilegri nákvæmni og gaf þeim nöfn. Þess vegna er bókstafinn L. að finna á eftir fræðiheitunum. Nöfnin og lýsingarnar birti hann í tímamótaverki sínu Species Plantarum árið 1753. Í sama riti nefndi hann sjö aðrar hlyntegundir á nafn en kenndi enga þeirra við platanvið. Ef til vill sýnir það okkur hversu líkar þessar tegundir geta verið.

Enn er ónefnt að tegundirnar eru báðar evrópskar. Garðahlynur vex í miðhluta álfunnar og oft til fjalla. Broddhlynur vex á svipuðum slóðum en einnig norðar. Hann er miklu algengari á Norðurlöndum en þar telst garðahlynur innfluttur slæðingur.
Sigurður Arnarson er í stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga.
Vænting
Þegar vinnan er farin í hundana
Hús dagsins: Norðurgata 26
Tegundir birkiættkvíslarinnar