Kattaraugun

EYRARPÚKINN - 39
Nonni skartaði fjórtán kattaraugum á svörtum drullusokki og lýstu glyrnurnar myrkrið eins og rakettur þegar hann steig pedalana.
Nonni reiddi okkur stráka og vorum stundum margir á hesti og komumst ekki langt en mér fannst gaman að standa á stýrinu.
Sendlahjól Kaj Rasmussen bakara sem geymdi hveitisekki í skúrnum var einstakt hjól danskt og máluðum við það svart en skiltið hvítt á milli slánna og reiddum heim kartöflur úr garðinum norðan Norðurgötu og kenndum Einari Jónssyni að hjóla.
Hlykkjaðist pabbi suður Norðurgötuna með poka á grind og mildi að hann slasaði ekki sig og aðra áður en Nonni náði að stoppa hann af.
Níu ára gamall keypti ég hjólið hans Gulla en Gulli keypti DBS og kallaði Djöfulsins bölvað skran en Simmi átti Raleigh með breiðum dekkjum og entist lengi í Eyrarvegi.
Ef reiðhjól hvarf af bæ fannst það útí Ægisgötu og erfðum við það ekki lengi við Stegló Magló. Slútti brúskurinn rauði oná ennið en brillur á nefbroddi þegar Stegló reiddist.
Stjörnubjört kvöld hjóluðu stóru púkarnir út og suður Eyrina með kattaraugun rauð og græn í bláu myrkrinu.
Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.
- Kattaraugun er kafli úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003.


Hvernig koma á Skoda upp brekku

3+30+300

Export

Með hæla í rassi
