Fara í efni
Pistlar

Gamla dúnsýrenan á Akureyri (Syringa villosa)

TRÉ VIKUNNAR - X

Tími og tíska er nokkuð sem víða kemur við sögu. Val okkar á plöntum til ræktunar er ekki undanskilið þessari reglu. Runnar, blóm og tré eiga sitt blómaskeið og hverfa svo aftur úr tísku. Sýrenuættkvíslin (Syringa spp.) á ótal fulltrúa sem þrífast með mestu ágætum á Íslandi. Flest sýrenuyrki og -tegundir sem við ræktum hér eru nokkuð keimlíkar að því leyti að þær hafa bleik, lillablá eða sjaldnar hvít blóm og eru stórir runnar. En þegar litið er nánar á þetta þá er nú samt alltaf svolítill munur sem sumir myndu kalla mikinn mun.

Upprunalega dúnsýrenan í Lystigarðinum á meðan hún var og hét. Þarna var hún einstofna og mikið tré af sýrenu að vera. Mynd: Björgvin Steindórsson. Af síðu Lystigarðsins á Akureyri. 

Fyrir rúmum þremur áratugum, þegar undirritaður var starfsmaður Skógræktarfélags Eyfirðinga í Kjarnaskógi, þá varð á vegi hans sýrena sem heitir dúnsýrena. Þetta verður að teljast alveg eðlilegt þar sem skógræktarfélagið rak gróðrarstöð og fjölgaði allskonar trjám og runnum. Þessi sýrena átti rætur að rekja til Lystigarðsins á Akureyri og þangað hafði hún borist einhvern tíma fyrir 1960. Þegar undirritaður man fyrst eftir þessari formóður dúnsýrena við Eyjafjörð, þá stóð hún sem einstofna tré sunnan undir litlum kofa í Lystigarðinum. Nú eru bæði sýrenan og kofinn fallin.

Dúnsýrenan í garði á Akureyri. Pattaralegur runni og hlaðinn blómum sumarið 2022.

Þessari sýrenu hafði verið fjölgað mikið í Kjarna og var vinsæl. Enda segir svo í leiðarvísi skógræktarfélagsins frá því um 1990 að dúnsýrena sé; „algeng, harðgerð og beri rósrauð blóm.“ En þrátt fyrir allar þessar vinsældir var mikið til af úr sér vaxinni dúnsýrenu í pottum, eitt vorið í kringum 1990. Þá var brugðið á það ráð að planta henni hist og her um Kjarnaskóg, frekar en að henda þessum gömlu plöntum. Margar fóru fyrir ofan Kjarnakot og við leiðina upp að gamla leikvelli. Einnig fór nokkuð af plöntum í skógana ofan vegar á móti flugvellinum. Plönturnar tóku ágætlega við sér og það er gaman núna, nokkrum áratugum síðar, að rekast á þessa stóru runna þakta í lillabláum blómum í júlímánuði. Hún er enn nokkuð algeng í görðum Akureyrar en fer þó fækkandi enda verða runnarnir ansi fyrirferðarmiklir með aldrinum. 

Sýrenusafn í garði höfundar í Kristnesi. Dúnsýrenan er sú stóra til vinstri, svo ´Elinor‘ og loks glittir í einhverja gljásýrenu. 

Skömmu eftir 1990 fór fagursýrenan ´Elenor´ (Syringa x prestoniae´Elenor´) að verða alls ráðandi í framleiðslu og gamla dúnsýrenan fékk að víkja. En gamla dúnsýrenan er ágætlega harðger og oft nokkuð blómviljug. Ekki hefur undirritaður skoðað grasafræðina og er ekki fær um að meta það hvort tegundin sé rétt greind, en oft vill brenna við að plöntur sem berast milli grasagarða séu blendingar. Þessi gamla dúnsýrena er planta sem gæti hentað í skjólbelti og víða á ræktuðu landi, svona fyrir augað. Auðvitað líka í sumarbústaðalóðir, stærri garða og þar sem lítil tré eða stórir runnar njóta sín. En þessi dúnsýrena getur náð 4-5 meta hæð.

Dúnsýrenan blómasumarið 2022. Það er eiginlega regla að blómgunin verður lítil árið eftir gott blómasumar. 

Það hefur vakið athygli undirritaðs í sveitinni að kýr vilja helst ekki éta sýrenur, þó ekki séu þær eitraðar. Hinsvegar er það svo að kettir naga gjarnan sýrenur í tætlur eins og garðeigendur margir hverjir vita. Það verður að teljast merkilegur eiginleiki að vera ofbeitt af rándýrum en látin vera af grasbítum.

Smellið hér til að lesa pistilinn í heild.

  • Vikulega birtist pistill um Tré vikunnar á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga. Orðið hefur að samkomulagi að Akureyri.net birti hluta hvers pistils sama dag og hann kemur á vef félagsins í því skyni að vekja athygli á skrifunum.

Skógarjaðrar

Sigurður Arnarson skrifar
27. mars 2024 | kl. 10:30

Svona bara af því bara

Sigurður Ingólfsson skrifar
27. mars 2024 | kl. 10:02

Fannfergi

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
25. mars 2024 | kl. 11:30

Hús dagsins: Spítalavegur 15

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
24. mars 2024 | kl. 19:00

Gleðispillirinn og neyslunöldrarinn kveður sér hljóðs

Rakel Hinriksdóttir skrifar
23. mars 2024 | kl. 06:00

Eins gott að þú baðst ekki um bjúgu!

Orri Páll Ormarsson skrifar
22. mars 2024 | kl. 10:30