Fara í efni
Pistlar

Að hverfa til einfaldleikans

Á SPJALLI MEÐ AÐALSTEINI ÖFGAR – 9

„Er ég kannski fjölmiðill?“ var það fyrsta sem valt upp úr Aðalsteini þegar ég sótti hann niður á Eyri. Leiðin lá út á Svalbarðsströnd. „Ég fór að pæla í þessu vegna þess að ég er alltaf að blaðra hér og sumir sem eru með hlaðvarp eða blogg eða eitthvað svoleiðis eru kannski skilgreindir sem fjölmiðlar og þurfa þá sjálfsagt að borga eitthvað eða… eða fá þeir kannski fjölmiðlastyrk? Ég væri alveg til í það,“ sagði hann ákafur.

Þar sem ég er gamall fjölmiðlamaður hugðist ég segja eitthvað gáfulegt um þróun fjölmiðlunar en ég komst satt að segja ekkert að.

„Nei, veistu, ég er búinn að kortleggja þetta rugl. Kannski ætti ég að koma mér í Kastljós,“ hélt Alli áfram og baðaði út höndunum þannig að ég fipaðist næstum við aksturinn. „Sko, það er allt að koma í ljós sem ég var búinn að segja og þeir sem töldu mig öfgafullan geta étið það ofan í sig. Ég sagðist vilja loka tikktokkinu, banna aðgang barna að samfélagsmiðlum, gefa þeim frí frá símanum og fá þau til að lesa, skrifa, tala saman, leika sér, vinna, skapa, deila og slást.“

„Slást?“ skaut ég inn í.

„Nei, ég meina svona gannislag, takast aðeins á, maður á mann, ekki að einhver hópur taki einn fyrir og sparki í hann liggjandi. En hlustaðu nú. Flest af þeim óhæfu- og skemmdarverkum sem börn standa fyrir eru svokallaðar tikktokk áskoranir þar sem veruleikafirrt fólk úti í heimi setur eitthvað steikt á skjáinn og skorar á krakka að gera eins, það sé svo rosalega kúl. Við erum að tala um alls konar áhættuhegðun og sjálfsskaða og börn hafa farið mjög illa út úr þessu.“

„Mér þykir þú fróður,“ tautaði ég þegar við keyrðum fram hjá heita læknum sem ég veit ekki hvort heitir eitthvað.

„Ég fylgist bara með,“ sagði Alli. „Menntamálayfirvöld og fleiri eru loks að kveikja á perunni og reyna að snúa þessari sefjun og síbylju við í von um að endurheimta börnin okkar. En hversu langt dugir það? Þegar foreldrarnir hugsa meira um instagrammið, sjálfurnar, lækin, búbblurnar, húðflúrin og hundana þá er ekki nema von að veröldin sé á leið… í hundana. Klukkustundar fyrirlestur í skóla eða stöku aðfinnslur heima fyrir vega ekki nema gramm á móti þeim tonnum sem koma frá tæknirisunum og það eru þeir sem móta börnin okkar og ala þau upp sem sálarlausar og siðblindar maskínur.“

„Þú sparar ekki stóru orðin. En ætlaðir þú ekki að tala um fjölmiðla?“ spurði ég.

„Þetta hangir allt á sömu spýtunni, skilurðu? Þegar börnin flettu dagblöðum heimilisins, heyrðu útvarpsfréttir yfir kvöldmatnum, horfðu jafnvel á sjónvarpsfréttir með fjölskyldunni og allir voru í sama veruleika þá var hægt að ræða saman um hlutina. Börnin horfðu líka á ýmsa fróðleiksþætti og leiðbeinandi hönd foreldra eða afa og ömmu var oft ekki langt undan og það var í gegnum þessa samveru og sameiginlega fjölmiðlun sem móðurmálið, þekking og siðvit barst frá einni kynslóð til annarrar.“

Þetta hljómaði svo sem vel en mér finnst frekar billega sloppið að sífra um að allt hafi verið betra áður fyrr. „Alli, þessir tímar koma ekkert aftur.“

„Vertu ekki of viss. Má vera að skrattinn hitti ömmu sína þegar gervigreindin er búin að valda slíka tjóni að tæknirisarnir neyðast til að loka öllu heila klabbinu og þá þurfum við kannski að byrja frá grunni, hverfa aftur til einfaldleikans.“

Við vorum nú komnir niður að vitanum á Svalbarðseyri og í huganum var ég einmitt horfinn aftur til einfaldleikans. Ég var búinn að heimsækja þennan vita í 60 ár, fyrst með pabba sem fæddist þarna og svo með mínum eigin börnum og enn sæki ég í kyrrðina og einfaldleikann í fjörukambinum. Til að njóta að fullu þurfti ég að skrúfa niður í Aðalsteini Öfgar og þar með kveð ég lesendur að sinni. Lifið heil.

Stefán Þór Sæmundsson er framhaldsskólakennari og fyrrverandi blaðamaður

Notkun og mikilvægi hafþyrnis

Sigurður Arnarson skrifar
23. september 2026 | kl. 11:20

Þurfum við alltaf að vera að verða betri?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 06:00

Neita að troða nikku í kokið

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
19. september 2026 | kl. 06:00

Takk fyrir mig, Akureyri!

Orri Páll Ormarsson skrifar
18. september 2026 | kl. 12:00

Þröngsýni, sjúkdómur hinna

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
16. september 2026 | kl. 20:00

Ættkvísl hlyntrjáa

Sigurður Arnarson skrifar
16. september 2026 | kl. 10:30