Eigum við að borga brúsann?
Á SPJALLI MEÐ AÐALSTEINI ÖFGAR – 10
„Hvernig dettur okkar dæmalausu og hæstvirtu snillingum í hug að láta almenning greiða niður þessa heimatilbúnu verðbólgu og svokallaðar verðbólguvæntingar sem verða til af því að ákveðinn hópur fólks er með kaupæði, eyðir og spennir og hugsar bara um rassgatið á sjálfum sér? Svo eigum við öryrkjarnir, ég meina eldri borgarar, að borga brúsann. Ég breyttist víst úr öryrkja í eldri borgara þegar ég varð 67 ára, mér snarbatnaði alveg en mér sýnist lífeyririnn hafa lækkað talsvert,“ tautaði Aðalsteinn Öfgar í símann.
Ég reyndi að taka upp léttara hjal. „Já, borga brúsann, segirðu? Ég var að lesa frétt um kvika og persónulega verðlagningu og þar er tekið dæmi um vatnsbrúsa sem kostar almennt 5.000 krónur en með algrími, áhrifavaldi og persónunjósnum væri hægt að finna einstaklinga sem væru tilbúnir að borga 20.000 krónur fyrir sama brúsa. Mætti ekki spila meira inn á þetta?“
Það lá við að heyrði hvernig Alli gapti. Það brakaði í kjálkaliðunum og síðan fékk hann sér drjúgan sopa af einhverjum vökva og kyngdi stórum.
„Ég trúi því ekki að þú styðjir þetta rugl, Stefán,“ sagði hann með þunga í röddinni. „Má vera að ég hafi lesið eitthvað um þetta en heilinn setti það strax í ruslflokk. Þetta er eins og með öppin og alla þá vitleysu. Þú hleður niður alls konar öppum í von um að fá nokkrar krónur í afslátt, þú veitir Algrími Alvaldssyni fullan aðgang að öllum þínum gjörðum, skoðunum og löngunum og útkoman verður einhvers konar vélræn neysla, þar sem tækin velja vörur fyrir þig og hvaða verð þú gætir verið reiðubúinn að greiða. Þetta er ekki mannlegt samfélag, þetta heitir að falla flatur fyrir kapítalisma úr Kísildalnum!“
Eins gott að Alli sá ekki glottið á mér gegnum símann. „Jú, það er eitthvað til í þessu en svo er líka tala um jákvæða mismunun og hvernig ólíkir hópar upplifa verð og þjónustu. Er ekki til dæmis gráupplagt að Íslendingar fái ferðapassa eða aðgang að ýmsum baðlónum og náttúruperlum fyrir skít og kanil en útlendingarnir borgi upp í topp?“
„Okkur finnst það sjálfsagt sanngjarnt en í guðs bænum ekki tala um upplifanir. Ég þoli þetta ekki. Jú, jú, fólk má upplifa sig í einhverju ástandi, kyni, skapi og svo framvegis og upplifa náttúru og listir en fjandakornið þegar ekki má lengur segja rétt og rangt, satt og ósatt heldur að það fari bara eftir upplifun hvers og eins þá er mér nóg boðið. Gildir þetta líka um verð? Ef ég upplifi 4.900 krónur fyrir kíló af þorski sem okur en Úlli athafnamaður upplifir það sem smáaura, hvor hefur þá rétt fyrir sér?“
„Þú segir nokkuð. Kannski ætti að persónusníða verð á vörum og þjónustu út frá skattframtali viðkomandi,“ sagði ég.
„Og þjóðerni, eins og þú minntist á. Í ýmsum löndum borga heimamenn bara brot af því sem ferðamenn þurfa að greiða, ég heyrði til dæmis að ferðamaður hafi þurft að borga 1.500 kall fyrir bjór í Egyptalandi en heimamaður á næsta borði fékk hann á 200 kall. Eða þegar menn koma til Tyrklands þar sem ekkert er verðmerkt og afgreiðslumaðurinn byrjar að spyrja um þjóðerni og segir svo „special price for you, my friend“. Ef kúnninn er frá stöndugu vestrænu landi þá er byrjað að prútta í 10 þúsund fyrir skyrtuna og kannski farið niður í 6 þúsund en ef þú ert frá fátækara landi er kannski byrjað að prútta í 4 þúsund.“
Jæja, við félagarnir komumst ekki að niðurstöðu í þessu símtali og ætli við verðum ekki bara að bíta á jaxlinn og greiða niður olíuverðbólguna. Ég er reyndar á rafmagnsbíl og Alli á ekki bíl en verðlagning er víst ekki persónusniðin – enn sem komið er.
Lifið heil.
Stefán Þór Sæmundsson er Akureyringur með eyfirskar, þingeyskar og skagfirskar rætur
Hús dagsins: Norðurgata 16
Að hverfa til einfaldleikans
Notkun og mikilvægi hafþyrnis
Þurfum við alltaf að vera að verða betri?