Fara í efni
Pistlar

Að bjarga heyi. Skáldin um landlæsi

TRÉ VIKUNNAR - 163

Pistill í röðinni Tré vikunnar birtist vikulega á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga, alla miðvikudaga. Akureyri.net birtir brot úr hverjum pistli til að vekja athygli á skrifunum og hvetur fólk til að lesa meira á vefsíðu félagsins.
_ _ _

Fyrir nokkrum vikum birtum við tvo pistla um landlæsi og ástand lands. Þann fyrri má sjá hér og þann seinni hér. Þótt þessir pistlar hafi vakið nokkra athygli og orðið til þess að höfundur fékk sendar svívirðingar á alnetinu var í raun ekkert nýtt sem birtist í þeim. Allt sem þar var að finna hefur legið fyrir lengi.

Í þessum pistli skoðum við málin út frá öðru sjónarhorni. Við skoðum hvað sum af okkar ástkæru skáldum hafa haft um málið að segja. Sum hafa skrifað um málaflokkinn en önnur hafa skrifað um hugsunarhátt þeirra sem afneita sannleikanum. Þau skrif má sem best heimfæra á samdaunasýkina sem lýst var í áðurnefndum pistlum þótt þau eigi reyndar við um margt fleira. Þessi pistill er aðeins sýnishorn af því sem skáldin hafa skrifað um efnið en er ekki ætlað að vera tæmandi úttekt.

Skógar og reyndar einnig skógleysi hafa lengi verið listamönnum hugleikið viðfangsefni. Náttúran öll, þar með talið skógar eða skortur á þeim, eru eilífðaruppspretta frumlegrar sköpunar. Það á ekki bara við um íslenska listamenn. Listmálarinn Claud Monet sagði að ríkuleg fjölbreytni í verkum hans kæmi frá náttúrunni því hún væri uppspretta innblástursins. Ef til vill segjum við seinna meira frá slíkri uppsprettu sem erlendir listamenn hafa nýtt sér en í þessum pistli skrifuðum við lítillega um innblástur frumkvöðla íslenskrar málaralistar.

Nú birtum við sýnishorn ljóða og lausamáls eftir sum af okkar virtustu skáldum. Fyrir fram verðum við þó að biðjast forláts á þeim kynjahalla sem sést í pistlinum. Við vitum samt vel að konur hafa skrifað um ásýnd landsins en því miður rifjaðist lítið af því upp þegar þessi pistill var í smíðum. Það verður að skrifast á heilaþoku höfundar.

 
Ómerkt landslagsmálverk sem reynt var að selja sem verk eftir Ásgrím Jónsson. Íslenskt landslag hefur löngum verið listamönnum mikill innblástur. Myndina fengum við úr þessari frétt.
Ómerkt landslagsmálverk sem reynt var að selja sem verk eftir Ásgrím Jónsson. Íslenskt landslag hefur löngum verið listamönnum mikill innblástur. Myndina fengum við úr þessari frétt.

Til gamans byrjum við á nokkrum landsþekktum vísum frá þeim tíma þegar setið var yfir fé. Þær eru ortar þegar ekki tíðkaðist að beita fé á land í annarra eigu án leyfis. Þetta sést á vísunum því í þeim kemur fram að hjarðanna var gætt. Það hlutverk var oft í höndum barna. Ef til vill er skortur á vörsluskyldu skömminni skárri en barnaþrældómurinn sem kraumar undir í sumum þessara vísna.

Síðan segjum við frá sýn nokkurra skálda og höfum kaflana í aldursröð skálda sem sagt er frá. Fjölmörg ljóð hafa verið samin sem gætu átt heima í þessum pistli en við birtum bara sýnishorn.

 
Vænt sauðfé á beit í óleyfi innan skógargirðingar á Héraði. Þrátt fyrir að þetta fé ætti ekki að vera þarna fengu eigendurnir greitt sérstakt gæðastýringarálag vegna landnýtingar. Því fylgir að féð á aðeins að vera á beit þar sem eigandinn hefur leyfi til að beita því. Ekki er farið eftir þessu ákvæði. Mynd: Sig.A.
Vænt sauðfé á beit í óleyfi innan skógargirðingar á Héraði. Þrátt fyrir að þetta fé ætti ekki að vera þarna fengu eigendurnir greitt sérstakt gæðastýringarálag vegna landnýtingar. Því fylgir að féð á aðeins að vera á beit þar sem eigandinn hefur leyfi til að beita því. Ekki er farið eftir þessu ákvæði. Mynd: Sig.A. 

Um lausagöngu

Á þeim tíma sem setið var yfir fé var ákveðin vörsluskylda búfjár við lýði. Ekki þótti sanngjarnt eða eðlilegt að sauðfé fengi að ráfa frjálst og eftirlitslaust um og valda tjóni þar sem því sýndist. Sauðfé var ekki beitt á land nágranna þannig að segja má að stjórnlaus lausaganga hafi ekki hafist á Íslandi fyrr en hætt var að mjólka ærnar og færa frá. Nokkuð misjafnt er hvenær fráfærur lögðust af og stjórnlaus lausaganga hófs. Fór það meðal annars eftir landshlutum, sveitum og einstökum bæjum. Þó má segja að í kringum fyrra stríð hafi verið hætt að mjólka ær í kvíum víðast hvar en á sumum stöðum hafi sá siður ekki lagst af fyrr en eftir seinna stríð. Síðasti smali á Íslandi var Kristján Bersi Ólafsson sem síðar varð skólameistari í Flensborgarskóla í Hafnarfirði. Hann sat yfir fé á Kirkjubóli í Bjarnardal í Önundarfirði allt til ársins 1951 (Sigurður 2002). Má miða við það ártal sem árið sem stjórnlaus lausaganga á láglendi varð óskrifuð regla á landinu. Rétt er þó að nefna að fyrir þann tíma var ekki setið yfir fé á afréttum nema í seljum þar sem ær voru mjólkaðar.

Alla tíð hafa verið ákvæði í lögum sem ætlað er að stemma stigu við lausagöngu þótt illa gangi að fara eftir þeim á okkar tímum. Samt er því haldið fram á tyllidögum að sauðfjárbændur fylgist með hverri á og því ætti beitarstjórnun að vera fremur einföld ef vilji er fyrir hendi. Frá þessu sögðum við í þessum pistli. Vísurnar í þessum kafla eru ekki í neinni sérstakri röð.

Bíum bíum bamba
börnin litlu þamba
fram um fjallakamba
að leita sér lamba.
(Þjóðvísa)

Nefna skal að sögnin að þamba getur merkt að kjaga áfram með erfiðismunum, til dæmis gegn stormi og hríð. Þótt smalamennska hafi vísast verið erfið vinna á köflum er algengara að vísurnar séu rómantískar og mæri þessa þjóðlegu barnavinnu sem oft stappaði nærri þrælkun. Það er óvíst að Tuma og félögum hafi alltaf þótt þetta góð vinna.
 

Hann Tumi fer á fætur
við fyrsta hanagal
að sitja yfir ánum
lengst inní Fagradal.
(Freysteinn Gunnarsson)

Krakkar út kátir hoppa

úr koti og höll.
Léttfættu lömbin skoppa
um laut og völl.
 

Smalar í hlíðum hóa
sitt hvella lag.
Kveður í lofti lóa
svo léttan brag.
(Margrét Jónsdóttir)

Klappa saman lófunum,
reka féð úr móunum,
 
vinna sér inn bita,
láta’ ekki hann pabba vita.
 
Klappa saman lófunum,
reka féð úr móunum,
tölta’ á eftir tófunum,
tína egg úr spóunum.
(Þjóðvísur)

Út um græna grundu
 
gakktu, hjörðin mín.
Yndi vorsins undu
ég skal gæta þín.

(Steingrímur Thorsteinsson)


Sigurður Arnarson er í stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga.

Meira á vef Skógræktarfélagsins. Smellið hér til að sjá allan pistilinn.

Lárheggur. Sígrænn, blómstrandi krúttrunni

Sigurður Arnarson skrifar
13. maí 2026 | kl. 09:30

Glímt við Selána

Jóhann Árelíuz skrifar
10. maí 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Sæborg í Glerárþorpi

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
09. maí 2026 | kl. 06:00

Attenborough og trjávernd

Sigurður Arnarson skrifar
08. maí 2026 | kl. 21:00

Persónuleiki og fíkn

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
06. maí 2026 | kl. 06:00

Hversu vel hreyfist þú? Getur verið að þig vanti hreyfanleika?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
05. maí 2026 | kl. 06:00