Fara í efni
Íþróttir

Þjálfarinn Marotzke og 4. flokkur KA 1957

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 81

Vorið 1957 réð Knattspyrnuráð Akureyrar (KRA) erlendan þjálfara í fyrsta skipti, Karl-Heinz Marotzke frá Vestur-Þýskalandi. Marotzke var 23 ára og hafði nýlokið þriggja ára námi í hinum kunna íþróttaháskóla í Köln. Hann þjálfaði meistaraflokkslið ÍBA á Íslandsmótinu um sumarið og þjálfaði einnig yngri flokka bæði hjá Þór og KA. Marotzke dvaldi aftur á Akureyri hluta sumarsins 1958 við þjálfun.

Á myndinni er Marotzke ásamt drengjum í 4. flokki KA. Ritstjóri Akureyri.net þekkir suma þessara drengja með nafni en gaman væri ef lesendur skoðuðu myndina gaumgæfilega og sendu upplýsingar eða tilgátur um það hverjir eru á myndinni á netfangið skapti@akureyri.net

Lið ÍBA féll úr efstu deild Íslandsmótsins um haustið en margir sem æfðu undir stjórn Þjóðverjans hafa sagt frá því, meðal annars þeim sem þetta skrifar, að koma hans hafi verið mikill hvalreki; að Marotzke hafi kennt Akureyringum gríðarlega mikið og í raun lagt grunn að ferli margra þekktra knattspyrnumanna bæjarins.

Landsþjálfari og rektor mæltu með Marotzke

Marotzke kom til Akureyrar 3. mars en liðlega mánuði síðar hélt KRA blaðamannafund og að honum loknum var í fyrsta skipti fjallað um Þjóðverjann í fjölmiðlum.

Akureyrarblöðin, Dagur, Íslendingur og Alþýðumaðurinn, fjölluðu öll myndarlega um ráðningu hins erlenda þjálfara. Þar kom fram að hann hefði, í háskólanum, lagt stund á almennar íþróttir með knattspyrnu sem aðalnámsgrein, og prófið, sem hann lauk með ágætum vitnisburði, veitti rétt til alhliða íþróttakennslu. Sjálfur væri Marotzke hinn snjallasti knattspyrnumaður og hefði t.d. verið í úrvalsliði háskólans, en í liðinu hefðu verið margir heimsfrægir knattspyrnumenn, sem þó eru ekki nefndir. 

Blöðin greina frá því að aðalkennari Marotzke í knattspyrnu í háskólanum hafi verið Sepp Herberger, „landsþjálfari Þýzkalands eða þjálfari núverandi heimsmeistara í knattspyrnu. Mælti hann, ásamt rektor íþróttaháskólans, Fritz Weisweiler, sérstaklega með Heinz Marotzke sem knattspyrnuþjálfara, svo að KRA hefir verið mjög heppið um val þjálfarans.“

Hálfkveið hitanum í Eþíópíu

Viðtal birtist við Marotzke í Degi þar sem meðal annars var spurt: Hver voru tildrög þess, að leið þín lá til Íslands?

Marotzke svaraði: „Þannig stóð á, að í undirbúningi var ráðning til Eþíópíu og átti ráðningartíminn þar að vera tvö ár. Ég hálfkveið fyrir hitanum, og þegar Höskuldur Markússon skrifaði mér var ég ekki lengi að hugsa mig um. Vildi fremur halda í norðurátt.“

Þess má geta að Höskuldur Markússon, sem Marotzke nefnir, hét upphaflega Harry Rosenthal, þýskur gyðingur sem fluttist til Íslands vegna ógnarstjórnar Adolfs Hitlers. Erlingur Davíðsson, ritstjóri Dags, greinir frá því í minningargrein um Höskuld sumarið 1968 að árið 1938 hafi hann komið í heimsókn til aldraðrar móður sinnar sem búsett var í Reykjavík, haft 17 daga leyfi, en ekki snúið aftur heim. „Og víst mátti hann happi hrósa, því ættmenn hans, svo sem bróðir og hans fjölskylda enduðu líf sitt í gasklefunum,“ skrifaði Erlingur.

Unnusta Harry Rosenthal, Hildegard Heller, komst til Íslands skömmu á eftir honum og fengu þau íslenskan ríkisborgararétt. Hún tók upp nafnið Hildigerður Georgsdóttir.

Þýska parið fluttist til Akureyrar strax sama ár og þau komu til landsins. Hann var mikill áhugamaður um knattspyrnu og hafði sinnt dómgæslu í heimalandinu. Höskuldur kom inn í Knattspyrnuráð Akureyrar árið 1956 og útvegaði þjálfarann Marotzke strax árið eftir. Höskuldur, sem lengi var skrifstofustjóri Amaro,  lést 25. júní 1968. Hann varð bráðkvaddur á Akureyrarvelli á meðan ÍBA og ÍBV léku þar á Íslandsmótinu.