Fara í efni
Íþróttir

Hver hefur þjálfað öll þessi fjögur lið?

Mynd: Friðrik Vestmann

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 138

Þórsarar sækja Vestmannaeyinga heim í dag í Bestu deildinni í fótbolta og á morgun halda KA-menn til Reykjavíkur þar sem þeir mæta Frömurum. Mynd dagsins er dregin fram af því tilefni; hvers vegna, kann einhver að spyrja og svarið er einfalt: Á myndinni er maður sem þjálfað hefur öll þessi fjögur lið – Fram, KA, Þór og ÍBV, í þessari röð – og raunar tvö önnur í efstu deild, fleiri en nokkur annar.

Myndin er tekin á Akureyrarvelli sunnudaginn 24. júní 1973 þegar Íþróttabandalag Akureyrar (ÍBA, sameiginlegt lið Þórs og KA) tók á móti Íþróttabandalagi Akraness (ÍA) í 1. deild Íslandsmótsins, þeirri efstu. Gestirnir unnu 6:2. Þarna er Árni Stefánsson í marki ÍBA, við fjærstöngina er Aðalsteinn Sigurgeirsson og Akureyringurinn lengst til hægri, með auglýsingu um Útitex málninguna frá Efnaverksmiðjunni Sjöfn á Akureyri á bringunni, er Benedikt Guðmundsson – faðir Guðmundar, Gumma Ben, og því afi landsliðsmannsins Alberts Guðmundssonar.

  • Maðurinn sem um ræðir að þessu sinni, sá sem þjálfað hefur liðin sex, er Jóhannes Atlason, sem var spilandi þjálfari ÍBA þetta sumar; hann er sá Útitex-merkti við hlið Árna markvarðar.

Jóhannes er Framari og var landsliðsmaður til margra ára. Hann steig fyrstu skrefin með meistaraflokki Fram 1963 og lék með liðinu þar til hann var ráðinn þjálfari og leikmaður ÍBA 1972. Liðið féll úr efstu deild árið áður en fór umsvifalaust upp á ný og Jóhannes var í sömu hlutverkum 1973, leikmaður og þjálfari.

Jóhannes hélt heim á leið eftir þetta og þjálfaði Fram 1974 til 1976. Hann sneri til Akureyrar á ný 1978 þegar hann var ráðinn þjálfari KA sem lék þá í efstu deild í fyrsta skipti og stýrði liðinu einnig 1979.

Eftir að hafa þjálfað Fram í annað skipti var Jóhannes landsliðsþjálfari Íslands 1982 og 1983 og var svo ráðinn þjálfari á Akureyri í þriðja skipti þegar hann tók við liði Þórs 1985. Hann þjálfaði Þór aftur 1987 og 1988.

Sumarið 1990 þjálfaði Jóhannes Atlason Stjörnuna í Garðabæ og aftur 1991, og loks var hann við stjórnvölinn hjá ÍBV 1993. Eftir það sumar hætti Jóhannes þjálfun.