Hver kastar spjótinu og hverjir fylgjast með?
GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 137
Mynd af „Silfurmanninum“ Vilhjálmi Einarssyni sýna akureyrskum ungmennum spjótkast vakti mikla athygli og gríðarlega lukku þegar hún birtist á þessum vettvangi nýverið. Því er tilvalið að draga fram aðra spjótkastsmynd sem einnig er tekin er Akureyrarvelli við Hólabraut.
Vilhjálmur fræddi Akureyringana ungu um spjótkast í ágúst 1957, tæpu ári eftir að hann varð annar í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourne, en ekki liggur ljóst fyrir hvenær mynd dagsins var tekin. Bragginn norðan vallarsvæðisins er altént enn á sínum stað. Hvað segja lesendur; veit einhver hver kastar spjótinu á myndinni og hverjir fylgjast með? Jafnvel hvaða ár myndin var tekin?
Sá sem þetta skrifar þykist þekkja suma á myndinni en gaman væri og fróðlegt að fá upplýsingar frá lesendum á netfangið skapti@akureyri.net