Fara í efni
Íþróttir

Gunnar Huseby gestur á Norðurlandsmótinu 1951

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 134

Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum, það 100. í röðinni, fer fram um helgina á svæði Íþróttafélags Reykjavíkur. Af því tilefni er hér dregin fram 75 ára gömul mynd, tekin í byrjun september árið 1951, á Norðurlandsmótinu í frjálsíþróttum (sem í fjölmiðlum var stundum einnig nefnt Meistaramót Norðlendinga og Frjálsíþróttamót Norðurlands). Það er enginn annar en KR-ingurinn Gunnar Huseby, einn fræknasti íþróttamaður sem Ísland hefur alið, sem þarna kastar kringlu. Hann keppti sem gestur á mótinu, bæði í kúluvarpi og kringlukasti.

Gunnar var þekktastur fyrir kúluvarp og varð tvívegis Evrópumeistari, 1956 og 1950, árið áður en hann keppti sem gestur á Akureyri. Hann kastaði kúlunni 15,23 á Norðurlandsmótinu 1951 en Hjálmar Torfason úr HSÞ varð Norðurlandsmeistari, kastaði 13,57 m sem var þingeyskt met. Daginn eftir reyndu þeir tveir að bæta afrek sín í aukakeppni og kastaði Gunnar þá 16,13 m og Gunnar 13,93 m.

Gunnar Huseby varð Evrópumeistari í kúluvarpi í Osló árið 1946; hann var þá á 23. aldursári og sigraði með yfirburðum, kastaði 15,56 m – 30 cm lengra en næsti maður. Hann varð aftur Evrópumeistari í Brüssel fjórum árum síðar og er eini Íslendingur sem varið hefur Evrópumeistaratitil í frjálsíþróttum. Í Brüssel voru yfirburðir Gunnars enn meiri en í Osló, hann kastaði 16,74 m, rúmlega hálfum öðrum metra lengra en Ítalinn Angiolo Profeti (15,16 m) sem hlaut silfurverðlaun. Munur á gull- og silfurhafa á EM hefur aldrei verið jafn mikill.

Hið glæsilega kast Gunnars í Brüssel var bæði Íslandsmet og Norðurlandamet, svo og Evrópumeistaramótsmet. Íslandsmetið stóð í 17 ár, þar til Guðmundur Hermannsson kastaði 17,34 m í maí árið 1967.