Fara í efni
Íþróttir

KA og Þór á „gamla, góða“ Sanavellinum

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 139

Akureyrarfélögin halda áfram keppni í Bestu deild karla í knattspyrnu í dag þegar lokaspretturinn hefst; fimm leikja hrina neðstu sex liðanna. KA mætir FH í Hafnarfirði og Þór sækir Val heim að Hlíðarenda. ÍBV er neðst í deildinni með 18 stig, KA hefur 20 og Þór og FH eru bæði með 21 stig. Tvö neðstu liðin falla að fimm leikjum loknum, fyrir sigur í þeim öllum fást 15 stig þannig að margt getur breyst og næsta víst að grimmilega verður barist.

Akureyrarliðin hafa marga hildi háð á knattspyrnuvellinum í gegnum árin, m.a. í hinum ýmsu vormótum á Sanavellinum sáluga. Gamla íþróttamyndin að þessu sinni er tekin þar vorið 1981. Knattspyrnumenn samtímans eru vanir góðum grasvöllum og síðustu ár rennisléttu, silkimjúku gervigrasi en ef grannt er skoðað má sjá að „gamli, góði“ Sanavöllurinn var ekki af því taginu heldur grófur malarvöllur, ekki ákjósanlegur staður fyrir berlæraða íþróttamenn og það henti gjarnan að minjagripir úr vellinum fundust í útlimum þeirra sem þar spreyttu sig.

Lengst til vinstri er KA-maðurinn Hinrik Þórhallsson, þá Þórsarinn Örn Guðmundsson og hægra megin er KA-maðurinn Jóhann „Donni“ Jakobsson. Sá síðastnefndi er borinn og barnfæddur Akureyringur, lék með ÍBA á sínum tíma og síðan KA í tæpan áratug. Hinrik lék fyrstu ár ferilsins með Breiðabliki í Kópavogi, var síðan tvö ár með Víkingi, 1979 og 1980 en flutti eftir það til Akureyrar og hóf að leika með KA 1981. Hann kenndi íþróttir við Menntaskólann fyrstu árin en síðan við Verkmenntaskólann í áratugi. Örn var KR-ingur sem lék með Þórsurum 1981 og 1982.