Fara í efni
Íþróttir

Silfurmaðurinn sýnir ungviðinu spjótkast

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 136

Vilhjálmur Einarsson varð í öðru sæti í þrístökki á Ólympíuleikunum í áströlsku borginni Melbourne árið 1956 eins og landsmönnum er vonandi flestum kunnugt. Vilhjálmur – gjarnan kallaður „Silfurmaðurinn“ – er á gömlu íþróttamyndinni að þessu sinni.

Myndin er tekin á Akureyrarvelli í ágúst 1957, tæpu ári eftir að hann stökk 16,26 metra í Melbourne og hreppti silfurverðlaunin. Vilhjálmur var fenginn til að halda námskeið í frjálsíþróttum fyrir unga Akureyringa og þarna sýnir hann þeim hvernig á að kasta spjóti.

  • Tæpir sjö áratugir eru liðnir síðan myndin er tekin. Kannast lesendur við einhvern af strákunum á myndinni? Gaman væri að fá upplýsingar um það á netfangið skapti@akureyri.net

Vilhjálmur var kjörinn íþróttamaður ársins þegar kjörið fór fram í fyrsta skipti árið 1956. Hann var kjörinn fyrstu þrjú árin og fimm sinnum alls - einnig 1960 og 1961.


  • Fyrst Vilhjálmur sýnir strákunum á myndinni hvernig kasta skal spjóti verður að nefna til gamans að Einar, sonur hans, er besti spjótkastari Íslandssögunnar og Íslandsmethafi. Einar Vilhjálmsson, sem varð í sjötta sæti á Ólympíuleikunum í Los Angeles 1984, var þrisvar kjörinn íþróttamaður ársins, 1983, 1985 og 1988.
  • Einar setti fyrst Íslandsmet í ágúst 1980 þegar hann kastaði 76,76 m á móti í Malmö í Svíþjóð. Bætti þá þriggja ára met Óskars Jakobssonar um 44 cm. Einar bætti eigið met fimm sinnum, með því sem stundum er kallað „gamla spjótið“, en hann kastaði lengst 92,42 m í Austin í Texas í apríl 1984.
  • Eftir að Austur-Þjóðverjinn Uwe Hohn kastaði spjótinu 104,80 m á móti í heimalandinu 20. júlí 1984 var ljóst að ekki var við óbreytt spjót unað því aðrir keppendur og starfsmenn voru í hættu! Tveimur árum síðar var spjótinu breytt að því leyti að þyngdarpunkturinn var færður 4 cm framar til að spjótið flygi ekki of langt.
  • Sigurður Einarsson var fyrstur til að setja Íslandsmet með „nýja“ spjótinu þegar hann kastaði 77,10 m í apríl 1986 og bætti það tvisvar áður en Einar náði metinu með 80,18 m kasti um sumarið. Einar bætti eigið Íslandsmet níu sinnum, kastaði lengst 86,80 m á Laugardalsvelli í ágúst 1992 og metið stendur enn, 34 árum síðar.