Fara í efni
Íþróttir

Sex sigurleikir ÍBA í röð – 3000 áhorfendur

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 135

Lið Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA) var nálægt því að verða Íslandsmeistari í knattspyrnu árið 1967 en endaði í þriðja sæti deildarinnar.

Það blés ekki byrlega fyrir lið ÍBA framan af móti því Akureyringar töpuðu fyrstu þremur leikjunum, fyrir Keflvíkingum á útivelli, Frömurum heima og Valsmönnum á útivelli. Eftir það varð heldur betur breyting á því ÍBA vann næstu sex leiki en gerði jafntefli í þeim síðasta.

Sex lið voru í deildinni þannig að hvert lék 10 leiki. Myndin er tekin miðvikudaginn 2. ágúst þegar Valur, ríkjandi Íslandsmeistari, kom til Akureyrar í næst síðustu umferð og margt var um manninn á vellinum eins og sjá má. Áhorfendur voru um 3.000. „Áhugann á leiknum má bezt sjá af því, að rútubílar komu fullir af fólki frá Húsavík, Siglufirði og nágrannasveitum,“ sagði í dagblaðinu Vísi daginn eftir.

Hermann Gunnarsson gerði fyrsta mark leiksins fyrir Val, Magnús Jónatansson jafnaði og ungur framherji, Rögnvaldur Reynisson, gerði sigurmarkið. Hann hafði komið inn á seint í fyrri hálfleik í stað Kára Árnasonar sem meiddist.

Á þessum árum voru gefin tvö stig fyrir sigur. Fyrir síðustu umferðina höfðu lið ÍBA, Vals og Fram öll 12 stig en ÍBA var með langbestu markatöluna, hafði skorað 21 mark en fengið á sig 11. Í lokaleiknum tóku Akureyringar á móti KR-ingum sem voru í bullandi fallhættu en gátu tryggt áframhaldandi veru í deildinni með jafntefli og í því skyni lögðu þeir áherslu á varnarleikinn; „tjölduðu“ nánast í eigin vítateig. Leikaðferð KR gekk upp, leikurinn endaði 0:0 þannig að KR slapp við fall en möguleikar ÍBA um meistaratitil urðu nánast að engu. Svo fór að Fram vann botnlið Akraness 2:1 og Valur sigraði Keflavík 4:2. Valsmenn og Framarar urðu því jafnir í efsta sæti með 14 stig og mættust í aukaleik um Íslandsmeistaratitilinn þar sem Valsarar höfðu betur, unnu 2:0 og fögnuðu sigri á Íslandsmótinu annað árið í röð.