Fara í efni
Íþróttir

Fjórir áratugir síðan KA-heimilið var vígt

Myndir: Skapti Hallgrímsson

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 133

Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir á félagssvæði Knattspyrnufélags Akureyrar síðustu misseri, nýr gervigrasvöllur var lagður vestan við íþróttahús félagsins og þar er nú risin stúka. Völlurinn hefur verið notaður til æfinga og á N1 móti barna en segja má að mannvirkin, völlurinn og stúkan, verði formlega tekin í notkun eftir rúma viku – mánudaginn 27. júlí – þegar KA tekur á móti Þór í Bestu deild karla í knattspyrnu, efstu deild Íslandsmótsins.

Af því tilefni er gaman að rifja upp að 40 ár eru síðan KA-heimilið var vígt; fyrsti hluti húsakosts félagsins á svæðinu en íþróttahúsið, sem er samfast upphaflegu byggingunni, var vígt rúmum fimm árum síðar, í október árið 1991. 

Gömlu myndirnar eru tvær að þessu sinni til hátíðarbrigða, teknar laugardaginn 28. júní árið 1986 þegar KA-heimilið var vígt að viðstöddum miklum mannfjölda. Sá sem þetta skrifar fjallaði um vígslu hússins í Morgunblaðinu og þar mátti m.a. lesa eftirfarandi: „Veðurblíðan var slík að menn muna vart annað eins þannig að aðstæður gátu ekki verið betri.“ Að því leyti hefði fréttin getað verið skrifuð í gær!

KA-merkið norðan á húsinu var afhjúpað þennan dag. Um það sáu börnin á myndinni til vinstri, Ragnheiður, 6 ára dóttir Guðmundar Heiðrekssonar þáverandi formanns KA og Davíð, 5 ára sonur Stefáns Gunnlaugssonar, formanns bygginganefndar hússins. Stefán hafði áður verið formaður félagsins og gegndi því embætti aftur síðar.

Nokkrir formenn KA voru mættir á hátíðina, m.a. sá fyrsti, Tómas Steingrímsson, og einnig Helgi Schiöth, sem sat í fyrstu stjórn með Tómasi og Jóni Sigurgeirssyni, sem var fjarverandi þennan dag. Á myndinni eru, fyrir framan, frá vinstri: Guðmundur Heiðreksson, Stefán Gunnlaugsson og Jón Arnþórsson. Aftan við standa, frá vinstri: Haraldur Sigurðsson, Hermann Sigtryggsson, Helgi Schiöth, Tómas Steingrímsson, Magnús Björnsson og Hörður Tulinius.