Fara í efni
Íþróttir

Þekkir einhver þessa ungu sundkappa?

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 84

Aldursflokkameistaramót Íslands í sundi fer fram í Sundlaug Akureyrar um helgina. Því er tilvalið að draga hana þessa fram sem gömlu íþrótta myndina í dag; þarna er hópur úr Sundfélaginu Óðni með bikar og bros er á vör nánast allra þannig að góður árangur hlýtur að hafa náðst í keppni. Ekki besta mynd sem tekin hefur verið en skemmtileg þrátt fyrir það.

Vita lesendur hvar myndin er tekin, hvenær og af hvaða tilefni? Fólk er hvatt til þess að skoða myndina gaumgæfilega og senda ábendingar um nöfn sundfólksins unga, á netfangið skapti@akureyri.net