Fara í efni
Íþróttir

Markverðir á annarri æfingu liðs Akureyrar

Mynd: Skapti Hallgrímsson

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 117

Þór tekur á móti KA í lokaumferð Olísdeildar karla í handbolta næsta fimmtudagskvöld og þar má búast við miklu fjöri eins og jafnan þegar nágrannarnir mætast. Af tilefninu er einboðið að draga fram þessa 20 ára gömlu mynd.

Handboltadeildir KA og Þórs sameinuðu krafta sína sumarið 2006; stofnuðu til liðs sem kallað var Akureyri og haldið var úti 11 keppnistímabil, til vors 2017. Myndin er tekin á KA-svæðinu þriðjudaginn 25. júlí 2006 á annari æfingu Akureyrarliðsins, tveimur dögum eftir að leikmenn mættu í fyrsta skipti saman á æfingu, í Íþróttahöllinni.

Þarna spretta úr spori markverðirnir Þórsarinn Sveinbjörn Pétursson, til vinstri, og KA-maðurinn Hreiðar Levý Guðmundsson. Hreiðar Levý lék þennan fyrsta vetur með Akureyri en gekk síðan til liðs við Sävehof í Svíþjóð og varð einn silfurdrengja Íslands sem leikmaður sænska liðsins, þegar Ísland lenti í öðru sæti á Ólympíuleikunum í Kína 2008. Hreiðar Levý lék með Akureyri á nýjan leik 2014 til 2016 en hefur fyrir löngu lagt skóna á hilluna. Sveinbjörn er enn í eldlínunni og leikur nú með Hapoel Ashdod í Ísrael.

Fyrir aftan þá Sveinbjörn og Hreiðar sjást í fjarska, frá vinstri, Hafþór Einarsson markvörður, KA-maður sem einnig hafði leikið með Þór, Svartfellingurinn Nikolaj Jankovic, örvhentur hornamaður úr KA og Króatinn Goran Gusic, örvhentur hornamaður eða skytta, sem lék fyrst með Þór en var leikmaður KA þegar Akureyrarliðinu var komið á fót.