Fara í efni
Íþróttir

Magnús Guðmundsson í Hlíðarfjalli 1957

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 119

Alþjóðlegt skíðamót, 66° North Cup, verður haldið í Hlíðarfjalli í komandi viku og því er tilvalið að gamla íþróttamyndin að þessu sinni sé tekin þar – af kunnum kappa. Þarna er Magnús Guðmundsson á úrtökumóti sem haldið var í Hlíðarfjalli 7. og 8. desember 1957 fyrir heimsmeistaramótið í Austurríki í febrúar árið eftir.

Magnús fæddist 1933 á Siglufirði en ólst upp á Akureyri og er einn af kunnustu íþróttamönnum bæjarins. Hann var óvenju fjölhæfur og náði þeim ótrúlega árangri að verða fimm sinnum Íslandsmeistari á skíðum og jafnoft Íslandsmeistari í golfi. Árið 1958 varð hann bæði Íslandsmeistari á skíðum (í bruni og alpaþríkeppni) og í golfi!

Meistaratitlarnir

  • Magnús varð fyrst Íslandsmeistari á skíðum 19 ára að aldri, 1952 (í alpatvíkeppni), síðan 1953 (í svigi), 1954 (í stórsvigi) og 1958 (í bruni og alpaþríkeppni).
  • Magnús varð fyrst Íslandsmeistari í golfi 1958 og síðan var hann ósigrandi fjögur ár í röð, 1963 til 1966.
  • Eftirminnilegasta sigurinn á Íslandsmótinu í golfi vann Magnús árið 1964 í Vestmannaeyjum þegar hann lék á 10 höggum undir pari vallarins og sigraði með fáheyrðum yfirburðum. Magnús lék á 270 höggum og vann með 25 högga mun. Næstu tveir léku á 295! Íslandsmót vannst ekki með sama glæsibrag á ný fyrr en tæpri hálfri öld síðar; Birgir Leifur Hafþórsson lék þá einnig á 10 höggum undir pari, þegar hann varð Íslandsmeistari 2013.

Magnús flutti til Bandaríkjanna 1955 og var þar í tvo vetur, kom þá aftur heim og starfaði meðal annars við skíðakennslu um tíma en fluttist alfarinn út á ný um miðjan sjöunda áratuginn. Magnús bjó lengst af í Sun Valley í Idaho ríki, þar sem hann var skíðakennari í fjöldamörg ár. Síðasta áratuginn var hann búsettur í Montana ríki. Hann lést í janúar 2022, 88 ára að aldri.