Fara í efni
Íþróttir

Fjórir kappar sem léku bæði með KA og Þór

Mynd: Skapti Hallgrímsson

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 143

Örlög karlaliða Akureyrar í knattspyrnu ráðast í dag þegar fram fer síðasta umferð efstu deildar Íslandsmótsins, Bestu deildarinnar. Ljóst er, illu heilli, að annað hvort liðið fellur úr deildinni. Akureyrarliðin mætast ekki í dag, en berjast þó óbeint; Þór, sem er stigi ofar en KA, mætir FH á útivelli en KA fær ÍBV í heimsókn.

Í tilefni dagsins er hér dregin fram mynd úr leik Akureyrarliðanna á gamla Akureyrarvellinum við Hólabraut í næst efstu deild sumarið 2006 – vegna þess að einn kappanna á myndinni kemur við sögu í leikjum dagsins auk þess sem fjórmenningarnir hafa allir leikið með báðum liðum bæjarins!

Þarna kljást KA-maðurinn Aleksandar Linta, varnarmaður frá Serbíu, og Þórsarinn Ibra Jagne, framherji frá Gambíu. Fyrir aftan þá eru KA-mennirnir Baldvin Ólafsson og Janez Vrenko.

Aleksandar Linta er núverandi þjálfari ÍBV; hann gæti gert KA-mönnum skráveifu með því að lið hans legði þá að velli en geri liðin jafntefli eða KA sigri halda KA-menn hugsanlega sæti sínu – það veltur á úrslitum í leik Þórs og FH.

Ótrúlegt en satt, þá hafa leikmennirnir fjórir á myndinni allir leikið með báðum Akureyrarliðunum, sem fyrr segir.

  • Aleksandar Linta kom til Íslands rúmlega tvítugur og lék eitt sumar með ÍA. Þaðan lá leiðin til Skallagríms í Borgarnesi, aftur hluta sumars til ÍA en síðan lék Linta með Víkingi í Ólafsvík í þrjú sumur áður en hann gekk til liðs við KA fyrir sumarið 2006. Linta var tvö sumur í herbúðum KA en lék síðan fjögur keppnistímabil með Þór. Skóna lagði hann á hilluna 2013, eftir tær leiktíðir á Grundarfirði.
  • Ibra Jagne kom til Þórs árið 2004 en eftir þrjú ár í Þorpinu samdi hann við KA og lék með liðinu eitt ár, 2007. Þaðan lá leiðin á ný til Þórs, Jagne lék með liðinu 2008 og framan af sumri 2009 en gekk til liðs við Magna á Grenivík um mitt sumar og lék einnig með liðinu 2010 og 2011. Sumarið 2012 lék Jagne aftur með Þór.
  • Baldvin Ólafsson hóf ferilinn með KA; lék með meistaraflokki félagsins frá 2005 til 2008, síðan í tvö ár með Magna á Grenivík en þaðan lá leiðin í Þór þar sem hann spilaði fjögur sumur, frá 2010 til og með 2013. Árið 2014 lá leiðin aftur í KA þar sem Baldvin var í fjögur ár, 2017 og 2018 lék hann með Magna á ný, með KA 2019 og loks með Magna aftur 2020.
  • Janez Vrenko kom til Íslands 2006 þegar Slóveninn samdi við KA. Hann lék með félaginu sex leiktíðir en gekk til liðs við Þór 2011 og var á mála hjá félaginu þar til snemmsumars 2015. Hóf sem sagt tímabilið með Þór en lék lungann úr sumrinu með Dalvík/Reyni.