Fara í efni
Íþróttir

Í þá „gömlu, góðu“ daga í Skemmunni

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 118

Þór og KA áttust við í efstu deild Íslandsmótsins í handbolta í Íþróttahöllinni á fimmtudagskvöldið að viðstöddum um 1.300 áhorfendum. Stemningin var mögnuð eins og gjarnan þegar Akureyrarfélögin hafa mæst á handboltavellinum síðustu áratugi og í tilefni þessa eftirminnilega kvölds er hér dregin fram mynd frá því í desember árið 1976 þegar liðin áttust við, einu sinni sem oftar í Íþróttaskemmunni á Oddeyri.

Myndin er tekin föstudagskvöldið 10. desember þegar bæði liðin léku í 2. deild, næstu efstu deild Íslandsmótsins. Stemningin í Skemmunni, eins og húsið var oftast kallað, var oft rafmögnuð og hávaðinn mikill þótt ekki væri pláss nema fyrir fáein hundruð áhorfenda.

KA vann leikinn 23:18 og á myndinni er KA-maðurinn Ármann Sverrisson (sem gerði fjögur mörk í leiknum) í dauðafæri. Það er Elías Jónasson, sem þjálfaði og lék með Þór, sem reynir að stöðva hann. Þórsarinn í markinu er Gunnar Jóhannsson.

Myndin er skorin öðru vísi hér að neðan og þar má sjá Þórsarann Gunnar Malmquist Gunnarsson og KA-manninn Guðmund Lárusson lengst til vinstri. Sá hluti myndarinnar birtist í Íslendingi og undir henni var spurt: Hvaða dansspor skyldu þetta nú vera hjá Gunnari og Guðmundi.

Mynd: Minjasafnið á Akureyri/Íslendingur/Friðrik Vestmann