Kylfingar á vellinum við Þórunnarstræti
GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 132
Akureyrarmótinu í golfi lýkur í dag og því er vel við hæfi að velja hana þessa sem gömlu íþróttamyndina í þetta skipti.
Mynd dagsins fékk ritstjóri Akureyri.net fyrir nokkrum árum úr safni Sigtryggs heitins Júlíussonar, hárskera og kylfings. Sigtryggur varð Íslandsmeistari í golfi árið 1946, fyrstur Akureyringa, þegar mótið fór fram á gamla golfvellinum við Þórunnarstræti á Akureyri.
Áður hafa birst hér nokkrar myndir úr safni Sigtryggs. Þessi gæti verið frá heimsókn kylfinga úr bandaríska hernum á Keflavíkurflugvelli, þótt ekki skuli fullyrt um það. Myndin virðist tekin á vellinum við Þórunnarstræti, sunnan og ofan við Menntaskólann, þar sem gerður var 9 holu völlur árið 1945 og GA hafði aðsetur allt þar til starfsemin fluttist að Jaðri árið 1970.
Annar er frá vinstri á myndinni er Magnús Guðmundsson (einn kunnasti íþróttamaður Akureyrar; hann varð fimm sinnum Íslandsmeistari í golfi og jafn oft á skíðum), fimmti frá vinstri er Gunnar Konráðsson – Nunni Konn – sjöundi frá vinstri er sennilega Friðjón Karlsson og við hlið hans Birgir Sigurðsson en akureyri.net er ekki kunnugt um nöfn annarra.
Þekkja lesendur ef til vill fleiri á myndinni? Þá væri gaman að fá upplýsingar sendar á netfangið skapti@akureyri.net
