Handboltalið ÍBA við lok fimmta áratugarins
GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 143
Þessi skemmtilega mynd er af handboltaliði Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA) veturinn 1948 til 1949 skv. upplýsingum sem fylgdu myndinni þegar sá sem þetta skrifar fékk hana afhenta fyrir nokkrum árum.
Alltaf er ánægjulegt að fá mynd sem þessa í hendur og enn betra ef nöfn á fólki fylgja með. Svo vel vildi vel í þessu tilelli, nema hvað konurnar í liðinu á myndinni eru níu en aðeins bárust átta nöfn.
Nöfn kvennanna þriggja í fremri röð eru rétt eftir því sem næst verður komist. Frá vinstri: Guðný Halla Jónsdóttir (Þór), Gíslína Margrét Óskarsdóttir (Þór) og Guðrún Georgsdóttir (Þór).
Sex standa í aftari röð en nöfnin sem bárust með myndinni voru aðeins fimm, í þessari röð, frá vinstri: Aðalheiður Óskarsdóttir (Þór), Ása Ásgrímsdóttir (KA), Hulda Jensdóttir (Þór), Árnína Guðlaugsdóttir (KA) og Hervör Ásgrímsdóttir (KA).
Þekkir einhver lesandi allar konurnar í sjón? Upplýsingar um hvort nöfnin hér að ofan eru rétt væru afar vel þegnar og vitaskuld það nafn sem vantar í upptalninguna. Ef einhver býr yfir vitneskju er best að senda línu á netfangið skapti@akureyri.net
