Fara í efni
Íþróttir

„Balkanbræður“ – þeir fyrstu komu 1989 í Þór

Þórsararnir Júlíus Þór Tryggvason, til vinstri, og Luka Kostic sigri hrósandi markaskorarar eftir 2:0 sigur á Íslandsmeisturum Fram sumarið 1989. Mynd: Rúnar Þór Björnsson

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 113

Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamaður á RÚV, hefur gert mjög áhugaverða útvarps- og hlaðvarpsþætti – Balkanbræður – um knattspyrnumenn frá fyrrum Júgóslavíu sem komu hingað til lands í því skyni að leika með íslenskum liðum og settust hér að. Gamla íþróttamyndin að þessu sinni er dregin fram í tilefni þessara prýðisgóðu þátta.

Fyrstu þrír Júgóslavarnir komu til Íslands árið 1989, þar af gengu tveir til liðs við Þór, framherjinn Bojan Taneski (sem jafnan var kallaður Tanevski á sínum tíma í íslenskum fjölmiðlum) og Luka Kostic, varnar- og miðjumaður. Sá þriðji, sóknarmaðurinn Goran Micic, sem stóð reyndar í þeirri meiningu að hann væri á leið til Þórs, hóf að leik með Víkingi í Reykjavík.

Upphafið má rekja til þess að Þórsarar réðu júgóslavneskan þjálfara, Milan Duricic, og hann fékk leikmennina tvo til landsins, fyrst framherjann Taneski og síðan Kostic, miðju- og varnarmann, sem Duricic hafði þjálfað hjá Osijek í heimalandinu.

Stórglæsileg mörk

Myndina tók Rúnar Þór Björnsson sunnudaginn 20. ágúst 1989 og hún birtist í Morgunblaðinu tveimur dögum síðar. Þarna eru Júlíus Þór Tryggvason og Luka Kostic, til hægri, sem höfðu ástæðu til að fagna eftir sigur 2:0 Þórs á Íslandsmeisturum Fram  á Akureyrarvelli, því báðir skoruðu glæsilegt mark af löngu færi, eins og sagði undir myndinni.

Mörkunum var þannig lýst í Morgunblaðinu:

  • Fyrra mark Þórs kom á 23. mínútu, og var þar Luka Kostic að verki, og er það fyrsta mark hans í deildarkeppninni á Íslandi. Luka tók aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig, og þrumuskot hans fór framhjá varnarvegg Fram og efst í markhornið, gjörsamlega óverjandi fyrir Birki [Kristinsson, landsliðsmarkvörð] í Frammarkinu, og sannkallað glæsimark.
  • Á 36. mínútu jók Júlíus Tryggvason forskot Þórs í leiknum í tvö mörk. Dæmd var aukaspyrna á Fram rétt við miðjuhringinn og virtist ekki mikil hætta vera á ferðum. Júlíus gerði sér hins vegar lítið fyrir og þrumaði í bláhornið. Birkir hreyfði hvorki legg né lið, enda vart búist við að Júlíus reyndi markskot af þessu færi. 

Einn sá allra besti

Luka Kostic er einn allra besti leikmaður sem klæðst hefur treyju íslensks knattspyrnuliðs. Hann festi rætur hér á landi og er fyrir löngu orðinn íslenskur ríkisborgari. Luka lék í tvö ár með Þór, þjálfaði liðið seinna árið en samdi eftir það við ÍA og lék með Skagamönnum í þrjú ár. Kostic var einn máttarstólpa ÍA og fyrirliði liðsins 1992 og 1993, Skagamenn urðu Íslandsmeistarar bæði árin og liðið 1993 er talið eitt það allra besta í íslenskri knattspyrnusögu. Kostic var kjörinn besti leikmaður Íslandsmótsins sumarið 1992 af leikmönnum efstu deildar.

Stórkostlegar móttökur

„Í minningunni upplifði ég það þannig þegar ég kom til Íslands að það hefði snjóað stanslaust alla sjö daga vikunnar. Ég bjó í húsi fyrir ofan Glerárskóla og var einu sinni að ganga þaðan á æfingu hjá Þór um kvöld og það snjóaði endalaust. Ég varð hræddur eitt augnablik, ég verð að viðurkenna það. En þá taldi ég sjálfum mér trú um það að það fólkið sem byggi á Akureyri ætti varla heima þar að ástæðulausu. Þannig ég dreif mig bara á æfingu og hugsaði ekki meira um snjóinn,“ segir Luka Kostic við Þorkel Gunnar í fyrsta þætti Balkanbræðra, um fyrstu kynni sín af Íslandi í febrúar árið 1989.

„Fyrstu kynni mín af samherjum mínum í Þór voru frábær. Ég talaði hvorki íslensku né ensku og var í raun bara mállaus. En hvernig strákarnir í liðinu tóku á móti mér var hreint út sagt stórkostlegt. Þannig að eftir aðeins þrjá mánuði á Íslandi var ég strax farinn að hugsa að ég vildi bara setjast að á þessu landi.“

Með höfuðverk af rokinu á Akranesi

„Malarvellir. Þeir skiptu mig engu máli. Veðrið hérna hefur aldrei truflað mig aftur á þessum 37 árum sem ég hef búið á Íslandi. Eina undantekningin er þegar ég bjó á Akranesi og það kom heil vika með miklu roki og rigningu þannig að ég fékk hausverk. En það er líka bara í eina skiptið á öllum þessum árum sem ég hef verið þreyttur á íslenska veðrinu,“ segir Luka Kostic í þættinum.

  • Þættir Þorkels Gunnar eru hér í spilara RÚV: Balkanbræður
  • Júgóslavía eins og flestir muna landið varð til síðla árs 1945, að lokinni heimsstyrjöld númer 2 – heimsstyrjöldinni síðari, eins og jafnan er talað um í sögubókum – en leystist upp í blóðugri borgarastyrjöld á tíunda áratug aldarinnar sem leið.
  • Landið náði frá mið Evrópu suður um Balkanskaga og á því svæði eru nú sex lönd; Slóvenía, Króatía, Bosnía og Hersegóvína, Norður-Makedónía, Svartfjallaland og Serbía.
  • Bojan Taneski er fæddur þar sem nú er Slóvenía. Luka Kostic fæddist þar sem nú heitir Bosnía og Hersegóvína en bjó lengst af í Króatíu áður en leiðin lá til Íslands.