Fara í efni
Íþróttir

Bæjakeppni Akureyrar og Reykjavíkur í íshokkí

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 116

Deildakeppni karla í íshokkí lýkur um helgina með tveimur leikjum Skautafélags Akureyrar og Skautafélags Reykjavíkur. Af því tilefni er þessi gamla mynd dregin fram; hún er að öllum líkindum tekin um 1980 á gamla skautasvellinu við Krókeyri á Akureyri, þegar enn fór reglulega fram bæjakeppni milli Akureyrar og Reykjavíkur áður en fyrsta Íslandsmótið var haldið veturinn 1991 til 1992.

Þekkir einhver mennina á myndinni? Skorað er á alla sem hafa einhverja vitneskju um það, eða luma á skemmtilegum íshokkísögum af Krókeyrinni, að senda póst á skapti@akureyri.net