Fara í efni
Íþróttir

Ármann skallar í mark Víkings sumarið 1978

Mynd úr safni Íslendings

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 131

KA og Víkingur áttust við í Bestu deildinni í knattspyrnu á fimmtudagskvöldið þar sem „Víkingar náðu kreista fram 3:2 sigur í blálokin,“ eins og sagði í umfjöllun akureyri.net. Gamla íþróttamyndin í dag er úr leik félaganna á Akureyrarvelli sumarið 1978, þegar KA lék í fyrsta skipti undir eigin merki í efstu deild Íslandsmótsins, eftir að deildaskipting var tekin upp

KA tók fyrst þátt í Íslandsmóti 1929, þegar leikin var einföld umferð á Melavellinum í Reykjavík, og tapaði þá 3:0 fyrir Víkingi. KA vann hins vegar 3:0 þegar liðin mættust aftur á sama stað 1932, og þegar KA var með á Íslandsmóti í þriðja skipti 1941, í síðasta sinn fyrir áratuga hlé, áttust liðin enn við og Reykvíkingarnir höfðu þá sigur, 4:1.

Myndin að ofan er tekin á Akureyrarvelli mánudagskvöldið 26. júní 1978. KA-maðurinn Ármann Sverrisson, þriðji frá vinstri, skallar þarna boltann í Víkingsmarkið eftir hornspyrnu Sigbjörns Gunnarssonar, án þess að bakvörðurinn Magnús Þorvaldsson (númer 3) fái rönd við reist. Markvörðurinn er Diðrik Ólafsson, fyrir framan hann er Húsvíkingurinn Helgi Helgason og Ragnar Gíslason er lengst til hægri. Úti á velli eru KA-mennirnir Guðjón Harðarson, nær, og Haraldur Haraldsson. Við hlið Haraldar er Lárus Guðmundsson, lengi atvinnumaður og landsliðsmaður. Gestirnir komust í 3:0 en Ármann minnkar þarna muninn í 3:1. Á síðustu mínútu fyrri hálfleiks gerði Gunnar Blöndal annað mark KA. 

Víkingar unnu leikinn 5:2 og gerði Arnór nokkur Guðjohnsen tvö markanna. Arnór, þá nýorðinn 17 ára, hóf síðar um sumarið langan og glæsilegan feril sem atvinnumaður í knattspyrnu þegar hann gekk til liðs við Lokeren í Belgíu. Eins og margir vita er Arnór faðir Eiðs Smára Guðjohnsen fv. landsliðsmanns, sem lék m.a. með Chelsea og Barcelona, og þar af leiðandi afi Sveins Arons, Andra Lucasar og Daníels Tristans, sem allt eru landsliðsmenn.