Á gamla golfvellinum við Þórunnarstræti
GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 122
Kylfingar sveifla orðið kylfum sínum allt árið, bæði innanhúss og á erlendri grundu, en margir eru án efa farnir að hlakka til að spila úti undir berum himni í íslenska blíðviðrinu. Því er tilvalið að draga fram hana þessa og bjóða upp á sem gömlu íþróttamyndina.
Þetta er á gamla golfvellinum við Þórunnarstræti, sunnan og ofan við Menntaskólann, þar sem gerður var 9 holu völlur árið 1945 og GA hafði aðsetur allt þar til starfsemin fluttist að Jaðri árið 1970.
Myndin gæti verið frá heimsókn kylfinga úr bandaríska hernum á Keflavíkurflugvelli, þótt ekkert skuli fullyrt um það. Þarna er amk nær örugglega útlendingur sem slær af teig en vitað er um nöfn nokkurra þeirra sem fylgjast með.
Frá vinstri: Gunnar Schram, Jóhann Gauti Gestsson – gjarnan kallaður Gauti kafari enda starfaði hann lengi sem slíkur, næst er óþekktur útlendingur, þá Ólafur Stefánsson, annar útlendingur, Friðjón Karlsson og Vignir Guðmundsson blaðamaður.
Geri einhver athugasemdir við nöfnin eða hafi einhverjar aðrar upplýsingar væri gott að fá póst á netfangið skapti@akureyri.net