Fara í efni
Fréttir

Niceair flýgur ekki frá Íslandi á næstunni

Martin Michael framkvæmdastjóri Niceair þegar hann kynnti fyrirhugaða starfsemi félagsins i janúar á þessu ári. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Ekkert verður af fyrirhuguðu áætlunarflugi Niceair til og frá Íslandi á næstunni; hvorki í sumar né næsta vetur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Martin Michael framkvæmdastjóra félagsins í dag. Til stóð að fljúga tvisvar í viku milli Akureyrar og Kaupmannahafnar.

Ákvörðunin var ekki auðveld, segir Michael, en tekin eftir ítarlegt mat á alþjóðlegu rekstrarumhverfi um þessar mundir. Að sögn hans er spurn eftir ferðalögum víða í Evrópu hvetjandi en mikil óvissa ríki í flugrekstri vegna pólitísks og efnahagslegs ástands í heiminum. Hann nefnir sérstaklega stríðið í Íran og hækkun eldsneytisverðs af þeim sökum, sem geri rekstraráætlanir til langs tíma sífellt erfiðari.

Framkvæmdastjórinn segir að ákveðnir viðskiptafélagar séu orðnir mun varkárari en búist var við og þrátt fyrir uppbyggilegar viðræður séu margir ófúsir til að skuldbinda sig til langs tíma eða taka aukna rekstraráhættu við núverandi aðstæður. Þetta hafi takmarkað verulega getu til að koma á stöðugum og fjárhagslega ábyrgum rekstri til og frá Íslandi á næstu mánuðum.

Nýtur stuðnings annars staðar

Í tilkynningunni segir að félagið muni, í stað þess að hefja flug til og frá Íslandi, einbeita sér á komandi vetrarvertíð að því að fljúga um meginland Evrópu. Á öðrum mörkuðum – öðrum en þeim íslenska, væntanlega – njóti Niceair áfram mikils stuðnings frá flugvöllum, svæðisbundnum yfirvöldum, viðskiptafélögu og þjónustuaðilum, „sem gerir flugfélaginu kleift að vinna að sjálfbærum vexti þrátt fyrir krefjandi alþjóðlegt umhverfi.“

Ennfremur kemur fram að Niceair sé enn sannfært um að Akureyri eigi skilið öfluga og áreiðanlega flugtengingu. Sjálfbær flugrekstur sé hins vegar ekki eingöngu byggður á væntingum; forsendur sjálfbærs reksturs séu stöðugar aðstæður á markaði, traust samstarf og  fyrirsjáanleiki í efnahagsumhverfi.

„Félagið mun því ekki skuldbinda sig til að snúa aftur á íslenska markaðinn fyrr en þessi grundvallarskilyrði eru til staðar,“ segir í tilkynningunni. Ákvarðanir um það hvort þjónusta hefjist á ný, eins og það er orðað, muni alfarið byggjast á hagkvæmni í rekstri og möguleikum á sjálfbærni til langframa fremur en skammtímamarkmiðum.