Fréttir
EasyJet: Til og frá London allan október
21.02.2026 kl. 10:00
Þota easyJet á Akureyrarflugvelli í fyrsta flugi vetrarins í október sl. Mynd: Þórhallur Jónsson.
Eins og búist var við hefur flugfélagið easyJet bætt við flugferðum milli Akureyrar og Gatwick-flugvallar í London í október í haust. Samkvæmt áætlun félagsins sem birt var í janúar átti flugið til Lundúna að hefjast 27. október en nú er búið að bæta við ferðum á laugardögum og þriðjudögum frá og með 3. október. Þessi viðbótarflug fram til 27. október verða þó ekki á sama tíma og þau flug sem áður voru komin í sölu.
- Fyrstu fjóra laugardagana í október verður flogið frá Akureyri kl. 17:55 og lent á Gatwick kl. 22:20 en frá og með 31. október verður flogið kl. 13:10 frá Akureyri og lent á Gatwick kl. 16:15.
- Fyrstu þrjá þriðjudagana í október er flogið frá Akureyri kl. 9:30 og lent á Gatwick kl. 13:55 en frá og með 27. október verður flogið kl. 14:40 frá Akureyri og lent á Gatwick kl. 17:45.
Þriðjudagsvélin frá Gatwick leggur af stað kl. 6 að morgni, þannig að farþegar á leið til Akureyrar eru að lenda rétt fyrir kl. hálfníu að morgni. Laugardagsvélin leggur hins vegar ekki af stað frá Gatwick fyrr en laust fyrir kl. 14, þannig að bæði A og B manneskjur ættu að geta fundið sér flug við hæfi!
- Frétt akureyri.net frá í janúar: Jólaflug með easyJet þegar komið í sölu