Fara í efni
Fréttir

Til Lundúna á 3000 kall eða Tene á 8000?

Viltu fljúga beint frá Akureyri til Lundúna fyrir innan við 3.000 krónur? Eða bæta kannski við 4.000-7.000 krónum eða svo og geta þá flogið áfram lengra út í heim?

Nú sér fyrir endann á vinsælu millilandaflugi easyJet til og frá Akureyri þetta vorið. Flogið var til og frá Manchester út marsmánuð og síðasta flugferðin til og frá Lundúna verður laugardaginn 25. apríl næstkomandi. Hægt er að fá afar ódýr sæti til Lundúna síðustu vikuna í apríl - en vilji fólk komast til baka kostar það talsvert meira!

Þriðjudaginn 21. apríl er hægt að fljúga beint frá Akureyri til Lundúna fyrir um 2.700 krónur og um 3.100 krónur laugardaginn 25. apríl. Umtalsvert meira kostar reyndar að fljúga í hina áttina – flugsætin til Akureyrar þessa síðustu easyJet-flugdaga vorsins kosta liðlega 50.000 krónur.

Til Lundúna á klink og áfram lengra á klink

En fyrir ævintýragjarna má auðvitað hafa áhyggjur af heimferðinni seinna. Hvers vegna að láta staðar numið í Lundúnum? Þaðan er hægt að fljúga áfram til tuga áfangastaða víða um heim. Reyndar þarf yfirleitt að eyða einni nótt á flugvallarhóteli á Gatwick-flugvelli og það kostar auðvitað einhverja þúsundkalla. 

Nokkur verðdæmi sem akureyri.net fann af handahófi sýna að það er hægt að komast til ýmissa freistandi áfangastaða fyrir smáaura. Í þessum tilfellum er gert ráð fyrir flugi frá Akureyri til Gatwick í Lundúnum, ýmist þriðjudaginn 21. apríl eða laugardaginn 25. apríl, og áfram út í heim daginn eftir. Nema hvað hægt er að komast á marga áfangastaði samdægurs, sé flogið út laugardaginn 25. apríl.

Akureyri - Antalya í Tyrklandi 8.749 krónur
Akureyri - Barcelona á Spáni 9.311 krónur (samdægurs)
Akureyri - Faro í Portúgal 6.807 krónur
Akureyri - Verona á Ítalíu 9.311 krónur
Akureyri - Hurghada (Egyptaland) 29.595 krónur
Akureyri - Alicante á Spáni 8.251 króna (samdægurs)
Akureyri - Ljubljana í Slóveníu 10.163 krónur
Akureyri - Tenerife 7.897 krónur (samdægurs)
Akureyri - Kaupmannahöfn 9.633 krónur

 

Svo er reyndar eitt sem kostar ekki krónu – og það er að láta sig dreyma!