EasyJet kaus að færa til laugardagskvölds
Brottfarartíma flugs easyJet frá Akureyri til Manchester á laugardögum var um síðustu mánaðamót seinkað um 10 klukkustundir, við litla hrifningu margra ef marka má viðbrögð við frétt akureyri.net um málið í lok síðasta mánaðar. Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia innanlandsflugvalla ehf., segir það hafa verið ákvörðun flugfélagsins að færa brottför til laugardagskvölds þegar ljóst var að breytinga væri þörf, en fleiri möguleikar hefðu staðið því til boða.
Brottför flugs easyJet frá Akureyri til Manchester á laugardögum var kl. 11.20 frá því félagið tók upp þráðinn í haust, og lent var í Manchester kl. 13.50. Frá og með síðustu mánaðamótum er brottför frá Akureyri hins vegar kl. 21:25 og lent ytra laust fyrir miðnætti, kl. 23:55.
- Frétt akureyri.net 30. janúar: Manchesterflug fært til kvölds á laugardögum
Hlutlaus aðili úthlutar flugtímum
Sigrún Björk segir í skriflegu svari til akureyri.net að úthlutun flugtíma á vellinum sé í höndum sjálfstæðs samræmingarstjóra, sem starfar á hlutlausan, gagnsæjan og óhlutdrægan hátt, og hann leysi úr málum í þeim tilfellum sem tvö eða fleiri flugfélög sækjast eftir flugtímum sem rekast á. Þar er Sigrún að vísa til danska fyrirtækisins Nordic Airport Coodination, sem úthlutar og skipuleggur lendingartíma á flugvöllum víða um norðanverða Evrópu.
easyJet valdi laugardagskvöld
Hún bendir ennfremur á að flugfélög þurfi að taka tillit til ýmissa annarra þátta í sínum rekstri og skipulagningu. „Flugfélögum er vel kunnugt um leikreglurnar varðandi flugtíma, enda eru þær notaðar á öllum alþjóðaflugvöllum í Evrópu. Félagið hefði getað valið brottfarartíma um miðjan dag á laugardögum eða föstudagskvöld en kaus að flytja flugið yfir á kvöldbankann á laugardögum. Í skipulagi áætlunar þá þarf að sjálfsögðu að taka tillit til margra þátta, s.s flotastýringar þeirra, vaktafyrirkomulags og hvíldartíma starfsfólks, aðstæðna á Manchester-flugvelli og skipulagi þar,“ segir Sigrún Björk aðspurð um hvort henni væri kunnugt um einhverja skýringu á því að easyJet hafi þurft að færa Manchesterflugið til laugardagskvölds.
„Gamli tíminn“ aftur næsta vetur
Vert er að geta þess að easyJet hefur birt flugáætlun fyrri hluta næsta vetrar milli Akureyrar og Manchester, frá 14. nóvember í haust til loka janúar 2027 og þá er brottfarartími á laugardögum sá sami og fyrir nýgerða breytingu – flogið frá Akureyri kl. 11:20 og lent 13:50 í Manchester.