Fyrsta Akureyrarflug easyJet í dag
Þegar hallar að hausti og farfuglarnir tygja sig til brottfarar úr Eyjafirðinum mæta þeir á fluginu öðrum kærkomnum gestum sem nú stefna norður til Akureyrar eftir sumarlangt hlé. Þetta eru Airbus flugvélar flugfélagsins easyJet en vetraráætlun félagsins milli Bretlandseyja og Akureyrar hófst formlega í dag þegar fyrsta vélin lendir á Akureyrarflugvelli á sjötta tímanum.
Áætlunarflug easyJet milli Akureyrar og tveggja borga á Englandi, Lundúna og Manchester, hefur notið vaxandi vinsælda og ákvað félagið því að byrja vetraráætlunina fyrr en undanfarin ár. Önnur breyting sem gerð er í vetur er að Manchesterflugið var fært yfir á föstudaga og mánudaga en það var áður á laugardögum og þriðjudögum, eins og Lundúnaflugið. Það verður því boðið upp á millilandaflug til og frá Akureyrarflugvelli fjóra daga í viku í vetur og svo bætist enn við þegar flugfélögin Transavia og Edelweiss verða með ferðir til og frá Zurich og Amsterdam eftir áramótin.
EasyJet mun fljúga milli Akureyrar og Lundúna fram í lok apríl en áætlunarflugið til og frá Manchester hefst í nóvember og lýkur í mars.
Akureyri-London
- Flogið á laugardögum og þriðjudögum. Fyrsta flug er laugardaginn 3. október og síðasta flug laugardaginn 24. apríl
Akureyri-Manchester
- Flogið á föstudögum og mánudögum. Fyrsta flug er föstudaginn 13. nóvember og síðasta flug föstudaginn 26. mars.
Eitt frávik er reyndar á flugáætluninni til Manchester, því flogið er fimmtudaginn 24. desember í stað föstudagsins 25. desember. Ef einhver hefur áhuga á að skella sér til Manchester kl. 17 á aðfangadag er hægt að kaupa farmiða á um 3.600 íslenskar krónur – sem er umtalsvert minna en jólasteikin kostar!