Fara í efni
Fréttir

Hvetur Icelandair til „að horfa norður“

Fyrsta Airbus flugvél Icelandair, Esja, á Akureyrarflugvelli í desember 2024 þegar hún var í þjálfunarflugi. Vélin kom ný til landsins nokkrum dögum áður. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Beint flug easyJet milli Akureyrar og tveggja enskra borga, Liverpool og Manchester, hefur reynst mjög vinsælt og vitað er að marga dreymir um beint flug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar. Viðskiptafræðinemi við Háskólann, Birgir Orri Ásgrímsson, hvetur Icelandair til þess arna í áhugaverðri grein sem akureyri.net birtir í dag. 

„Það er kominn tími til að Icelandair hefji beint áætlunarflug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar. Þróun síðustu ára hefur styrkt rökin fyrir þeirri leið,“ segir Birgir Orri í upphafi greinarinnar og vísar til easyJet, bendir á að innviðir Akureyrarflugvallar hafa verið efldir og minni Airbus-vélar séu á leið í flota Icelandair.

Fram kemur í grein Birgis Orra að Air Greenland hefji reglulegt beint flug í þessum mánuði milli Kaupmannahafnar og Ilulissat á Grænlandi, en þar var nýr flugvöllur opnaður fyrir stuttu.

„Samanburðurinn við Akureyri er áhugaverður. Í Ilulissat bjuggu 5.150 manns í ársbyrjun 2026. Í Akureyrarbæ voru íbúarnir 20.284. Þetta eru ekki alveg sömu landfræðilegu einingar, en stærðarmunurinn er engu að síður verulegur. Akureyrarflugvöllur getur síðan þjónað stærra svæði en sveitarfélaginu einu,“ segir hann.

„Grænland og Ísland eru auðvitað ólíkir markaðir. Tengsl Grænlands við Danmörku, ferðamannavaran og samgöngukerfið skapa ákveðnar forsendur og Air Greenland er auk þess að fullu í eigu grænlenskra stjórnvalda. Vegna þess getum við ekki yfirfært rekstrarforsendur þess félags beint á Icelandair,“ segir Birgir Orri og bætir við: „En við getum lært af nálguninni. Air Greenland horfir á Ilulissat sem gátt að heilu svæði. Icelandair ætti með sama hætti að horfa á Akureyri sem inngang að Norðurlandi, með eigin eftirspurn og eigin tækifæri.“

Grein Birgis Orra: Icelandair ætti að horfa norður