Fara í efni
Umræðan

Yfirlýsing aðalstjórnar KA vegna slyss og ákæru

Aðalstjórn Knattspyrnufélags Akureyrar birti í morgun yfirlýsingu á heimasíðu félagsins í kjölfar þess að tveir sjálfboðaliðar á vegum KA eru á meðal fimm manna sem ákærðir eru fyrir „líkamsmeiðingar af gáleysi“ vegna fjögurra barna sem slösuðust þegar hoppukastali á Akureyri tókst á loft sumarið 2021.

Yfirlýsing KA er svohljóðandi:

„KA harmar það slys sem varð sumarið 2021 þegar hoppukastali tókst á loft með þeim hörmulegu afleiðingum sem af því hlaust. Hugur okkar í KA hefur fyrst og fremst verið hjá þeim sem fyrir þessu skelfilega slysi urðu. Svo verður áfram.

Sem kunnugt er tók Handknattleiksdeild KA að sér í fjáröflunarskyni að útvega starfsmenn sem sinna skyldu miðasölu og umsjón á svæðinu fyrir eiganda og ábyrgðaraðila leiktækisins. Það var gert í góðum hug allra viðkomandi.

Nú hefur komið fram að tveimur sjálfboðaliðum á vegum Handknattleiksdeildar KA og KA/Þór hafa verið birtar ákærur vegna þessa máls. Frjáls félagasamtök líkt og KA vissulega er, byggja tilvist sína á miklu og fórnfúsu starfi sjálfboðaliða. Okkur þykir miður að ákæruvaldið hafi ákveðið að fara þessa leið í ljósi þess að eigandi og ábyrgðaraðili hoppukastalans hefur ítrekað lýst ábyrgð sinni á slysinu í fjölmiðlum. En um leið sýnum við því skilning að málið þarf að reka áfram í þeim farvegi sem það er nú í þar til niðurstaða fæst.“

Viljum við varðveita sögu og minjar?

Jón Ingi Cæsarsson skrifar
30. mars 2023 | kl. 09:30

Guði sé lof að ég er ekki unglingur í dag

Daðey Albertsdóttir, Silja Björk Egilsdóttir og Skúli Bragi Geirdal skrifa
28. mars 2023 | kl. 12:00

Til Sunnu Hlínar

Hjörleifur Hallgríms skrifar
28. mars 2023 | kl. 06:00

Skipulagsmál á Akureyri, bútasaumur til skamms tíma eða framtíðarsýn?

Jón Ingi Cæsarsson skrifar
25. mars 2023 | kl. 06:00

Mun unga fólkið okkar fjárfesta í húsnæði í Móahverfi?

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
24. mars 2023 | kl. 11:11

Tækifæri á Akureyrarvelli

Andri Teitsson skrifar
21. mars 2023 | kl. 18:50