Fara í efni
Umræðan

Sveinn Margeir farinn en Rømer kominn

André Rømer, Daninn sem kominn er til KA, og Sveinn Margeir Hauksson sem þarna fagnar öðru tveggja marka sínna í sigri KA á ÍA á dögunum. Myndir: KA og Ármann Hinrik

Knattspyrnumaðurinn Sveinn Margeir Hauksson, sem leikið hefur með KA í sumar í láni frá Víkingi, er farinn aftur í herbúðir Víkinga. Hins vegar hefur KA samið við hinn reynslumikla Dana André Rømer, sem er þegar kominn til Akureyrar og mættur á æfingu hjá liðinu.

Upphaflega stóð til að Sveinn Margeir léki með KA út þetta tímabil en vegna meiðsla í herbúðum Víkings og þátttöku liðsins í Evrópukeppni var ákveðið að kalla hann til baka úr láni. Sveinn Margeir hefur komið við sögu í 12 deildarleikjum og tveim bikarleikjum með KA í sumar og skorað fjögur mörk. Þar af komu tvö þeirra í síðasta leik hans fyrir félagið, þegar KA bar sigurorð af ÍA 3:2 um síðustu helgi.

André Rømer er 33 ára og lék síðast með Randers en þar sem samningur hans er útrunninn þarf KA ekki að greiða fyrir hann. Rømer er varnarsinnaður miðjumaður, sem ætlað er að leysa hlutverk Spánverjans Rodri í liði KA en Rodri leikur ekki meira með liðinu í sumar vegna meiðsla. Rømer er afar reynslumikill og á að baki um 370 leiki í efstu deild í Danmörku og Svíþjóð, auk 30 Evrópuleikja. Hann hefur orðið danskur meistari í þrígang og einu sinni bikarmeistari þar í landi. André er yngri bróðir Marcel Rømer, sem lék með KA síðari hluta keppnistímabilsins í fyrra.

Svæðisborgin Akureyri

Sigurjón Þórðarson skrifar
13. júlí 2026 | kl. 06:00

Evrópusambandið, meira en tollabandalag

Steinar Harðarson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 18:00

Við erum kölluð til kosninga

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
09. júlí 2026 | kl. 15:00

Akureyri heilsar þér með bros á vör

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
02. júlí 2026 | kl. 21:00

Húsnæðiserfiðleikar ungs fólks innan ESB

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
02. júlí 2026 | kl. 20:45

Drífum í að stytta hringveginn

Jóhannes Gunnar Bjarnason skrifar
02. júlí 2026 | kl. 14:30