Fara í efni
Umræðan

Bríet Fjóla farin frá Þór/KA til Þróttar

Bríet Fjóla með boltann í leik með Þór/KA í sumar. Mynd: Ármann Hinrik

Bríet Fjóla Bjarnadóttir, ein efnilegasta knattspyrnukona landsins, er farin úr herbúðum Þórs/KA og gengin til liðs við Þrótt í Reykjavík. Greint er frá þessu á samfélagsliðum beggja liða í dag.

Tilkynningin á vef Þórs/KA er svohljóðandi:

Stjórn Þórs/KA og knattspyrnudeildar Þróttar hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Bríetar Fjólu Bjarnadóttur í Þrótt og taka þau gildi þegar í stað. Samningur Bríetar Fjólu við Þór/KA gilti út yfirstandandi tímabil en samkomulag varð milli félaganna, leikmannsins og forráðamanna að hún skipti strax yfir til Þróttar.

Bríet Fjóla er eins og knattspyrnuáhugafólk veit gjörla ein af efnilegustu knattspyrnukonum landsins, fædd 2010 og hefur nú þegar verið í meistaraflokkshópi Þórs/KA í þrjú og hálft tímabil.

Bríet Fjóla á að baki 48 meistaraflokksleiki með Þór/KA, þar af 38 í Bestu deildinni. Hún kom fyrst við sögu í meistaraflokki haustið 2023 þegar hún kom inn af varamannabekknum í 3-2 sigurleik gegn Breiðabliki 13. september, leik sem jafnframt var minningarleikur um afa hennar, Guðmund Sigurbjörnsson, fyrrverandi formann Þórs. Þá á hún að baki 15 landsleiki með U16, U17 og U18 landsliðum Íslands.

Stjórn Þórs/KA þakkar Bríeti Fjólu fyrir hennar framlag til félagsins og óskar henni góðs gengis á nýjum vettvangi.

Þjálfari Þróttar er Jóhann Kristinn Gunnarsson fyrrverandi þjálfari Þórs/KA. Hann stýrði Þór/KA þegar liðið varð Íslandsmeistari hið fyrra sinni, haustið 2012; þjálfaði Þór/KA fimm ár alls í það skipti og svo aftur í þrjú ár frá 2023 til 2025.

Freistað með okkar eigin peningum

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
07. ágúst 2026 | kl. 15:00

Hvað gæti ESB gert fyrir Norðurland?

Halldór Jörgen Olesen skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 15:00

Ísland og ESB: Horft af brúnni

Þorvaldur Gylfason skrifar
04. ágúst 2026 | kl. 12:30

Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál?

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
29. júlí 2026 | kl. 11:30

Landbúnaður, fæðuöryggi, byggðamál og ESB

Hólmgeir Karlsson skrifar
27. júlí 2026 | kl. 06:00

Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu

Hjörtur Hjartarson skrifar
23. júlí 2026 | kl. 13:36