Sanngjarnt jafntefli hjá ÍBV og KA
KA og ÍBV skildu jöfn í viðureign liðanna í 15. umferð efstu deildar karla í knattspyrnu í Vestmannaeyjum í dag. Lokatölur urðu 2:2, eftir að ÍBV náði að jafna leikinn undir lokin, einum leikmanni færri.
Heimamenn voru sterkari aðilinn í leiknum framan af og KA-liðið náði ekki að fylgja eftir batnandi frammistöðu í undanförnum leikjum. Nýju mennirnir hjá KA, Adam Ægir Pálsson og André Römer voru báðir í byrjunarliðinu. Lítið fór fyrir Adam í fremstu víglínu en Römer stimplaði sig vel inn með því að skora fyrsta mark leiksins á 35. mínútu. Markið kom eiginlega upp úr engu, Römer var talsvert utan vítateigs þegar hann ákvað að láta vaða á markið. Gott skot meðfram jörðinni sem fór rakleiðis í nærhornið, í stöngina og inn. Að öðru leyti áttu Eyjamenn betri færi í fyrri hálfleik og undir lok hálfleiksins setti Vicente Valor boltann í stöngina á KA-markinu, þar sem Ívar Arnbro Þórhallsson stóð í fjarveru Steinþórs Más Auðunssonar.

Daninn André Römer byrjaði vel með KA, hann gerði fyrra mark liðsins í dag með góðu skoti fyrir utan vítateig. Mynd: KA
Eftir hlé jafnaðist leikurinn nokkuð en heimamenn þó áfram meira með boltann. Jöfnunarmarkið kom á 68. mínútu þegar löng sending kom inn á vallarhelming KA, þar sem Omar Sowe var ásamt Markúsi Mána Péturssyni og Hans Viktor Guðmundssyni miðvörðum KA. Á einhvern ótrúlegan hátt tókst Omari að koma boltanum og sjálfum sér á milli varnartröllanna tveggja, fór síðan framhjá Ívari markverði og renndi knettinum í netið. Ekta framherjamark.
Enn skorar Birgir Baldvinsson
Það tók KA ekki langan tíma að ná forystunni aftur. KA fékk sína fyrstu hornspyrnu í leiknum á 74. mínútu og Hallgrímur Mar Steingrímsson sendi boltann yfir á fjærstöngina þar sem bakvörðurinn sókndjarfi, Birgir Baldvinsson, reis manna hæst og skallaði knöttinn í netið. Fjórða mark Birgis í sumar og hann er næstmarkahæstur í KA-liðinu á eftir Hallgrími Mar.

Birgir Baldvinsson á fleygiferð með boltann. Þessi sókndjarfi bakvörður gerði seinna mark KA í Eyjum í dag. Mynd: Ármann Hinrik
Tveimur mínútum síðar fékk ÍBV hornspyrnu og í aðdraganda hennar urðu einhverjar stimpingar í markteig KA. Dómari leiksins lyfti rauða spjaldinu og sýndi Omari Sowe það en erfitt var að greina hvað gekk á eða hvað Omar átti að hafa gert af sér. Einum leikmanni fleiri tókst KA ekki að halda forystunni, því á 85. mínútu jafnaði Vicente Valor úr vítaspyrnu, sem dæmd var á Hans Viktor. Það sem eftir lifði leiks sóttu KA-menn grimmt en náðu ekki að nýta sér marktækifærin. Nokkuð sanngjarnt jafntefli varð því niðurstaðan, sem er vonbrigði fyrir bæði lið. Fyrir leikinn var ÍBV tveimur stigum á undan KA og bæði lið hefðu bætt stöðu sína í neðri hluta deildarinnar töluvert með sigri.
KA: Ívar Arnbro Þórhallsson - Guðjón Ernir Hrafnkelsson, Markús Máni Pétursson, Hans Viktor Guðmundsson, Birgir Baldvinsson - Andre Römer (Breki Hólm Baldursson 84.), Jeppe Pedersen (Valdimar Logi Sævarsson 72.), Hallgrímur Mar Steingrímsson - Jakob Snær Árnason (Jakob Héðinn Róbertsson 46.), Adam Ægir Pálsson, Danijel Dejan Djuric.
Næsti leikur KA er grannaslagurinn gegn Þór, mánudaginn 27. júlí.
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
Við erum kölluð til kosninga
Akureyri heilsar þér með bros á vör
Húsnæðiserfiðleikar ungs fólks innan ESB