Fara í efni
Umræðan

Bandarískur leikmaður til liðs við Þór/KA

Stjórn Þórs/KA hefur samið við bandaríska knattspyrnukonu, Libby Moore, um að leika með liðinu út keppnistímabilið. Libby leikur á miðjunni og er ætlað að styrkja hópinn í stað leikmanna sem eru að fara í önnur verkefni. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Þórs/KA.

„Libby er 25 ára miðjumaður og hefur nú þegar öðlast reynslu af því að spila í Evrópu eftir feril með háskólaliði sínu í Norður-Karólínu. Eftir flottan knattspyrnuferil með háskólanum í Norður-Karólínu 2019-2022 hefur hún komið við sögu hjá Fortuna Hjörring í Danmörku, Shelbourne á Írlandi og bandarísku liðunum Gotham og Lexington. Nú síðast var hún á mála hjá Þýska félaginu Turbine Potzdam, sem stuðningsfólk Þórs/KA ætti að kannast við frá viðureignum félaganna í Meistaradeild Evrópu hausti 2011,“ segir í tilkynningunni.

Libby er mætt til Akureyrar og er spennt að koma inn í hópinn hjá Þór/KA. Aðspurð kveðst hún hafa heyrt vel talað um íslensku deildina. „Ég á nokkrar vinkonur frá Bandaríkjunum sem hafa spilað í íslensku deildinni og þær hafa allar átt hér jákvæða upplifun. Ég veit að í ár er þetta mjög jöfn deild og hörð samkeppni, frá efstu sætum til þeirra neðstu svo hver einasti leikur verður erfiður. Ég er því spennt fyrir áskoruninni og spennt að komast á völlinn og gera mitt besta til að hjálpa liðinu,“ segir Libby Moore.

Bríet og Emelía Ósk á leið vestur um haf

„Á sama tíma og við bjóðum Libby velkomna í öflugan hóp leikmanna Þórs/KA eru tvær úr meistaraflokkshópnum, þær Bríet Jóhannsdóttir og Emelía Ósk Krüger, á leið í önnur verkefni. Báðar eru á leið í háskólanám í Bandaríkjunum og munu að sjálfsögðu halda áfram í fótboltanum á þeim vettvangi,“ segir á vef Þórs/KA.

Þá hefur Bríet Fjóla Bjarnadóttir skipt yfir í Þrótt, eins og greint var frá fyrr í dag – sjá hér.

Svæðisborgin Akureyri

Sigurjón Þórðarson skrifar
13. júlí 2026 | kl. 06:00

Evrópusambandið, meira en tollabandalag

Steinar Harðarson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 18:00

Við erum kölluð til kosninga

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
09. júlí 2026 | kl. 15:00

Akureyri heilsar þér með bros á vör

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
02. júlí 2026 | kl. 21:00

Húsnæðiserfiðleikar ungs fólks innan ESB

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
02. júlí 2026 | kl. 20:45

Drífum í að stytta hringveginn

Jóhannes Gunnar Bjarnason skrifar
02. júlí 2026 | kl. 14:30