Fara í efni
Umræðan

„Viljum berjast um hvern einasta titil“

Zdravko Kamenov, fyrirliði KA, og Miguel Mateo, þjálfari og leikmaður KA. Mynd: Þorgeir Baldursson.

Blaktímabilið er hafið, nokkrum leikjum lokið og tímabært að skoða heimaliðin. Við byrjum á körlunum. Karlalið KA í blaki spilar fyrstu heimaleiki sína um helgina, tvo leiki gegn Hamri frá Hveragerði, deildarmeisturum síðasta tímabils. Búast má við mjög jafnri og spennandi keppni í Unbroken-deild karla í vetur og segir Miguel Mateo, þjálfari KA, deildina vera þá sterkustu frá upphafi.

Blakleikir helgarinnar

    • Laugardagur 3. október
      Unbroken-deild karla
      KA-heimilið kl. 18
      KA - Hamar

    • Sunnudagur 4. október
      Unbroken-deild karla
      KA-heimilið kl. 15
      KA - Hamar

Akureyri.net er í blakgírnum í dag, heyrði í þjálfaranum og fer yfir leikmannahópinn í vetur. Þrír nýir leikmenn hafa gengið til liðs við KA frá Völsungi, ungur og efnilegur íslenskur leikmaður og tveir spænskir leikmenn.

Vilja berjast um alla titla

Miguel segir deildina í vetur verða þá sterkustu í sögunni, nýir leikmenn styrki liðin og sex af sjö liðum geti verið í baráttunni á toppnum. En hverjar eru væntingar hans til árangurs í vetur?

„Við viljum auðvitað alltaf berjast um hvern einasta titil. Það er alltaf markmiðið. Ég veit ekki hve raunhæft það er, en það er alltaf markmiðið. Deildin verður mun sterkari en áður, sjö lið og fyrir utan HK sem er með mjög ungt lið geta öll lið barist á toppnum og geta endað í fyrsta sæti eða sjötta sæti.“ 

KA lenti í 2. sæti deildarkeppni Unbroken-deildar karla í blaki á síðasta tímabili en unnu Íslandsmeistaratitilinn eftir sigur á Þrótti R. í úrslitaeinvígi. Þróttarar höfðu lent í 4. sæti deildarinnar, en slógu deildarmeistara Hamars út í undanúrslitum deildarinnar. Myndin er fengin af Facebook-síðu KA.

Miguel segir öll liðin vera með mjög sterkan fimm til sex manna kjarna og því geti smávægileg meiðsli skipt máli. „Öll liðin geta spilað mjög vel og erfitt að segja hvaða lið verður sterkast. Þróttur hefur fengið sterka íslenska leikmenn til að styrkja stöður þar sem þeir voru veikari fyrir og eru því með sterkara lið. Sama með Hamar, þeir hafa fengið nýja leikmenn og eru með sterkan hóp. Við sjáum núna um helgina hvernig þeir koma út. Vestri er með þrjá nýja leikmenn og geta verið með í baráttunni. Afturelding hefur einnig styrkt sig, en eru aðeins í vandræðum með íslenska leikmenn. Þróttur Fjarðabyggð getur líka verið með í baráttunni. Þetta verður því mjög sterk deild, sú sterkasta frá upphafi, að minnsta kosti þegar litið er á gæði allra liðanna.“

Liðsheildin og samheldnin eru styrkleiki KA

„Styrkleiki liðsins liggur í liðsheildinni. Þetta er mjög samheldinn hópur sem leggur mikið á sig og við æfum mikið,“ segir Miguel, spurður um hvað einkenni lið hans og hverjir styrkleikar þess eru.

 
Ljósmyndari á vegum akureyri.net leit við í íþróttahúsi Naustaskóla og fékk liðsmynd fyrir æfingu hjá KA-liðinu í vikunni. Aftari röð frá vinsti: Sölvi Hafþórsson, Sigurður Helgi Brynjólfsson, Ágúst Leó Sigurfinnsson, Hákon Freyr Arnarsson, Tómas Davidsson, Óskar, Miguel Mateo og Jakub Pośpiech. Fremri röð frá vinstri: Þórarinn Bergur Arinbjarnarson, Jorge Sanz Mora, Mateusz Jeleniewski, Juan Manuel Balnquer Sebastian, Svanur Hafþórsson og Zdravko Kamenov. Mynd: Þorgeir Baldursson.

KA hefur meðal annarra misst Gísla Martein Baldursson frá síðasta tímabili, mikilvægan leikmann í sóknarleik liðsins sem skoraði mikið seinni hluta tímabilsins, segir þjálfarinn. Nokkrir aðrir af leikmönnum síðasta tímabils eru einni horfnir til annarra verkefna. Þrír leikmenn komu til liðsins frá Völsungi fyrir tímabilið, Sigurður Helgi Brynjólfsson, tvítugur leikmaður sem þjálfarinn vonast til að nái að blómstra og fylla skarð Gísla, auk tveggja spænskra leikmanna, Juan Manuel og Jorge Sanz. Hann bindur einnig vonir við Hákon Frey Arnarsson, sem hefur tekið skref fram á við.

Leikmenn KA:

    • Svanur Hafþórsson, frelsingi (Libero)
    • Mateusz Jeleniewski, frelsingi (Libero)
    • Jorge Sanz Mora, miðja (Middle-blocker)
    • Sigurður Helgi Brynjólfsson, miðja (Middle-blocker)
    • Tómas Davidsson, miðja (Middle-blocker)
    • Þórarinn Bergur Arinbjarnarson, miðja (Middle-blocker)
    • Ágúst Leó Sigurfinnsson, díó (Opposite)
    • Juan Manuel Balnquer Sebastian, díó (Opposite)
    • Miguel Mateo Castrillo, díó (Opposite)
    • Zdravko Kamenov, uppspilari (Setter)
    • Sölvi Hafþórsson, uppspilari (Setter)
    • Marcel Pośpiech, kantur (Wing-spiker)
    • Hákon Freyr Arnarsson, kantur (Wing-spiker)
    • Jakub Pośpiech, kantur (Wing-spiker)

Komnir

    • Juan Manuel Balnquer Sebastian
    • Jorge Sanz Mora
    • Sigurður Helgi Brynjólfsson 

Farnir

  • Antoni Jan Zurawski 
  • Alexander Arnar Þórisson 
  • Gísli Marteinn Baldvinsson
  • Pedro Jose Lozano Caballero
  • Kristófer Magni Magnússon

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15

Beinum kastljósinu að atvinnulífinu

Karl Eskil Pálsson skrifar
29. september 2026 | kl. 20:15

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00