Fara í efni
Umræðan

„Við erum í mjög góðu samtali við KA-menn“

Eiríkur S. Jóhannsson formaður KA og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri eftir undirritun samningsi um uppbyggingu á KA-svæðinu í maí árið 2023. Mynd af vef Akureyrarbæjar.
„Við erum í mjög góðu samtali við KA-menn,“ segir Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri við akureyri.net vegna ummæla Eiríks S. Jóhannssonar, formanns félagsins á aðalfundi á dögunum, þess efnis að félagið bíði svara um viðauka, „sem gerður var að beiðni bæjarins, við framkvæmdasamninginn [um uppbyggingu á félagssvæði KA] er einmitt varðar breytingu á áætlaðri þátttöku sjálfboðaliða KA við verkið.“
 
Ásthildur kveðst bjartsýn á útkomuna. „Ég trúi ekki öðru en það náist samkomuleg um framtíðina, ég efast reyndar ekki um það,“ segir hún.
 
Á heimasíðu KA kom fram, og akureyri.net vitnaði til í frétt á föstudaginn, að Eiríkur hefði skotið „nokkuð föstum skotum á bæjarstjórn“ Akureyrar á aðalfundi félagsins; hann sagði erfitt að líta framhjá því að félögum virðist hafa verið mismunað og vísaði þar til uppbyggingar á KA-svæðinu annars vegar og svæði Þórs hins vegar.
 

Í fréttinni sagði meðal annars:

Eiríkur segir m.a. að fjölmargir sjálfboðaliðar, iðnaðarmenn í bænum, hafi unnið ótal klukkustundir í sjálfboðavinnu fyrir KA en fengið greitt frá Akureyrarbæ fyrir sambærileg verkefni við nýjan gervigrasvöll Þórs – „nýjan völl í Glerárhverfi,“ eins og það er orðað. „Í einhverjum tilfellum kann þetta að skýrast af misskilningi, en þegar upp er staðið er erfitt að líta fram hjá því að þarna virðist félögum hafa verið mismunað,“ segir Eiríkur.

Eiríkur sagði jafnframt:

„Það sem stingur mig mest er að það virðist vera gert ráð fyrir því að KA geti að miklu leyti treyst á sjálfboðaliðavinnu við uppbyggingu og viðhald, á meðan önnur félög, fá frekar beina aðkomu og stuðning. Sjálfboðaliðar eru gríðarlega mikilvægir og KA byggir á öflugu starfi þeirra, en það má ekki verða afsökun fyrir því að opinberir aðilar mismuni félögum bæjarins.“

Um þau ummæli formanns KA að félögum virðist hafa verið mismunað vildi Ásthildur ekkert segja. Sagðist ekki þekkja nógu vel til málsins til að tjá sig um það.

  • Frétt akureyri.net á föstudaginn:

„Félögum virðist hafa verið mismunað“

Aukið frelsi og sanngjarnt verð

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. júní 2026 | kl. 08:00

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00