Fara í efni
Umræðan

Lið Þórs/KA enn í mótvindi – tap í Eyjum

Allesandra Doherty Augur var besti maður Þórs/KA í dag, varði nokkrum sinnum vel og kom í veg fyrir stærri sigur ÍBV. Mynd: Ármann Hinrik

Þór/KA tapaði 2:0 fyrir nýliðum ÍBV í Eyjum í dag í Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Heimaliðið var betra og sigurinn sanngjarn en stelpurnar okkar í Þór/KA fengu ágæta möguleika á að skora en nýttu ekki, illu heilli; m.a mjög gott færi á meðan staðan var enn 0:0.

Nýliðar ÍBV hafa komið skemmtilega á óvart og unnið alla fjóra leikina til þessa. ÍBV er því efst í deildinni með 12 stig en Breiðablik getur náð Eyjaliðinu að stigum með sigri á Val á morgun.

Þór/KA hefur átt erfitt uppdráttar í byrjun móts; liðið tapaði einnig fyrir hinum nýliðunum, Grindavík/Njarðvík á útivelli – sem var reyndar ótrúleg óheppni þar sem heimaliðið gerði sigurmarkið á síðustu andartökunum – en gerði jafntefli í báðum heimaleikjunum, 2:2 við Stjörnuna og 1:1 við FH.

Eyjastúlkur þjörmuðu töluvert að gestunum í fyrri hálfleik og skoruðu þegar hálftími var liðinn, Allison Grace Lowrey kom boltanum í markið af stuttu færi eftir fyrirgjöf Olgu Sevcovu. Aðeins fáeinum mínútum áður hafði Þór/KA fengið dauðafæri þegar Hulda Ósk Jónsdóttir óð inn í vítateig og sendi á Elísu Bríeti Björnsdóttur en markvörður ÍBV sá við henni og varði vel.

Það var svo Olga Sevcoa sem gerði seinna mark ÍBV 20 mín fyrir leikslok eftir skyndisókn.

Bandaríski framherjinn Erin Flurey sem skoraði í tveimur fyrstu leikjunum, gegn FH og Grindavík/Njarðvík, hefur ekki komið við sögu í síðustu tveimur leikjum Þórs/KA. Hún er lítillega meidd en ætti að vera klár í slaginn fljótlega.

Leikskýrslan af vef KSÍ

Staðan í deildinni

Hlíðarfjall: Frá skærlituðum spandexgöllum til lýðheilsuparadísar

Þóroddur Ingvarsson skrifar
12. maí 2026 | kl. 20:30

Aðgengi er forsenda þess að tilheyra

Sigtryggur Ellertsson og og Júlía Júlíusdóttir skrifa
12. maí 2026 | kl. 20:00

Leikskólagjöld á Akureyri 2020 til 2026

Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
12. maí 2026 | kl. 19:30

Sterkara atvinnulíf – sterkari Akureyrarbær

Kristinn Frímann Árnason skrifar
12. maí 2026 | kl. 18:00

Látum náttúruna njóta vafans

Kristín Sigfúsdóttir skrifar
12. maí 2026 | kl. 15:35

Sjúkraflugið, Reykjavíkurflugvöllur hreint þjóðaröryggismál

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
12. maí 2026 | kl. 15:30