16 liða úrslit í bikar og tveir í Bestu karla
Upp er runnin bikarvika hjá tveimur af knattspyrnuliðum Akureyrar og eiga þau bæði heimaleik. KA tekur á móti Ægi á fimmtudag og Þór/KA tekur á móti Stjörnunni á föstudag. Báðir leikirnir eru í 16 liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar. Bæði Akureyrarliðin í Bestu deild karla eiga síðan leik á sunnudag, en Þórsarar fá aukahvíld í vikunni þar sem liðið féll úr leik í bikarkeppninni í 32 liða úrslitunum.
FIMMTUDAGUR 14. MAÍ KL. 14 - fótbolti
Sextán liða úrslit í Mjólkurbikarkeppni karla í knattspyrnu fara fram á miðvikudag og fimmtudag. KA leikur á heimavelli á fimmtudag, uppstigningardag, kl. 14. KA fékk heimaleik í 16 liða úrslitunum, og má segja að lukkan hafi verið með í drættinum því andstæðingarnir, Ægir úr Þorlákshöfn, sem unnu 2. deildina í fyrrahaust, sitja nú í botnsæti Lengjudeildarinnar að loknum þremur umferðum. En í bikarkeppni geta auðvitað orðið til alls konar ævintýri, eins og bæði liðin þekkja.
- Mjólkurbikarkeppni karla í knattspyrnu
16 liða úrslit
KA-völlur (Greifavöllurinn sunnan við KA-heimilið – gervigras), kl. 14
KA - Ægir
KA féll úr bikarkeppninni með 2-4 tapi fyrir Fram í 16 liða úrslitunum í fyrra. Ægismenn eru hins vegar komnir mun lengra í keppninni núna en í fyrra, þegar þeir féllu úr keppni með 2-3 tapi fyrir KV í fyrstu umferð forkeppninnar. Ægir nær að minnsta kosti þremur bikarleikjum í ár því liðið sigraði Reyni úr Sandgerði í annarri umferð forkeppninnar, 2-0 í lok mars, og vann síðan 7-1 útisigur á Árbæ í 32 liða úrslitunum í byrjun apríl. KA vann sömuleiðis stórsigur í 32 liða úrslitum, sigraði Hött á Egilsstöðum 5-0.
FÖSTUDAGUR 15. MAÍ KL. 18 - fótbolti
Sextán liða úrslit Mjólkurbikarkeppni kvenna í knattspyrnu fara fram á föstudag og laugardag. Meirihluta leikjanna var reyndar komið fyrir á föstudag vegna anna fjölmiðlafólks í kringum kosningar og aðra viðburði. Þór/KA fékk heimaleik og tekur á móti Stjörnunni, í annað skiptið á rúmri viku því þessi sömu lið mættust á Akureyri í 3. umferð Bestu deildarinnar í liðinni viku.
- Mjólkurbikarkeppni kvenna í knattspyrnu
16 liða úrslit
Þórsvöllurinn (VÍS-völlurinn - gervigras á Ásnum) kl. 18
Þór/KA - Stjarnan
Bæði liðin eru að koma inn í bikarkeppnina í 16 liða úrslitunum, eins og reglan er með liðin í Bestu deildinni. Þór/KA fór lengra en Stjarnan í bikarkeppninni í fyrra, féll úr keppni í átta liða úrslitum, eftir tap á heimavelli fyrir FH, en Stjarnan féll út í 16 liða úrslitum þegar liðið tapaði fyrir Tindastóli á heimavelli.
SUNNUDAGUR 17. MAÍ - fótbolti
Sjöunda umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu hefst á sunnudag. Þór á þá heimaleik gegn Skagamönnum, með fyrrum þjálfara Þórs, Lárus Orra Sigurðsson, við stjórnvölinn. Þór er í 9. sæti deildarinnar að loknum sex umferðum, hefur unnið tvo leiki, en ÍA er sætinu neðar með fimm stig, hefur unnið einn leik og gert tvö jafntefli.
- Besta deild karla í knattspyrnu, 7. umferð
Þórsvöllur (VÍS-völlurinn - gervigras á Ásnum) kl. 16
Þór - ÍA
Þór og ÍA mættust síðast í efstu deild karla í knattspyrnu sumarið 2013. Þór vann báða leikina, 1-0 á Þórsvellinum og 2-1 á Akranesi. ÍA féll úr efstu deild um haustið.
- - -
Eftir slaka byrjun hefur lið KA fært sig upp töfluna með tveimur sigrum í röð, en hafði áður náð einu jafntefli í fyrstu fjórum leikjunum. KA vann Þór á nýjum heimavelli Þórs og svo ÍBV á sínum heimavelli eftir þrjú töp í fyrstu þremur heimaleikjunum, á móti Stjörnunni, Víkingi og Keflavík. FH hefur hins vegar ekki unnið sinn fyrsta sigur enn sem komið er, hefur gert tvö jafntefli og situr í 11. sæti deildarinnar með tvö stig að loknum sex umferðum.
- Besta deild karla í knattspyrnu, 7. umferð
Kaplakrikavöllur í Hafnarfirði kl. 17
FH - KA
Þessi lið mættust tvisvar í Bestu deildinni í fyrrasumar, en voru svo hvort í sínum hluta, FH í efri og KA í neðri, í framhaldi deildarinnar í fyrrahaust. KA vann fyrri leikinn 3-2 á Akureyri í lok apríl, en FH vann stórsigur í Kaplakrika í júlí, 5-0.
Aðgengi er forsenda þess að tilheyra
Leikskólagjöld á Akureyri 2020 til 2026
Sterkara atvinnulíf – sterkari Akureyrarbær
Látum náttúruna njóta vafans