Fara í efni
Umræðan

Tvöfalt hjá Akureyrar- og Eyjaliðum í dag

Í dag mæta tvö af knattspyrnuliðum Akureyrar kollegum sínum úr Vestmannaeyjum. Þór/KA sækir ÍBV heim á Hásteinsvöll í Eyjum í Bestu deild kvenna, en í Bestu deild karla tekur lið KA á móti ÍBV á Akureyri.

Þór/KA klárar tvö lengstu ferðalögin í fyrstu tveimur útileikjum sínum í deildinni, fyrst til Njarðvíkur í 2. umferðinni og í gær hélt liðið áleiðis til Vestmannaeyja því í dag er komið að leik gegn ÍBV á Hásteinsvelli. Ferðalög til og frá Eyjum, bæði fyrir gestalið og Eyjaliðin þegar þau leika útileiki, hafa verið í fréttunum undanfarið enda staðan ekki alveg eins og best verður á kosið þessar vikurnar.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu
    Hásteinsvöllur í Vestmannaeyjum kl. 14
    ÍBV - Þór/KA

ÍBV hóf keppni í Bestu deildinni með þremur sigrum í fyrstu þremur umferðum mótsins, eftir tveggja ára fjarveru úr efstu deild, fyrst með 4-3 sigri á Fram á útivelli í fyrstu umferðinni, síðan 3-2 sigri á Víkingi á heimavelli og loks 3-2 sigri á Val á útivelli. Þór/KA er með tvö stig úr fyrstu tveimur leikjunum, gerði jaftefli við FH í fyrstu umferð, tapaði á útivelli fyrir Grindavík/Njarðvík og gerði svo jafntefli við Stjörnuna á heimavelli.

- - -

Í dag er annar leikur á dagskrá milli Akureyrar- og Eyjaliða því KA tekur á móti ÍBV á Akureyri í Bestu deild karla. Þessi lið mættust þrisvar í Bestu deildinni í fyrrasumar. Markalaust jafntefli varð niðurstaðan í Eyjum í maí, en KA vann 1-0 á Akureyri í ágúst. Liðin mættust síðan í lokaumferðinni í lok október í neðri hluta deildarinnar í Eyjum og vann KA þann leik 4-3.

  • Besta deild karla í knattspyrnu
    KA-völlur (Greifavöllurinn sunnan við KA-heimilið - gervigras) kl. 17
    KA - ÍBV

Bæði lið byrjuðu illa í deildinni í ár, náðu sér í eitt stig í fyrstu fjórum leikjunum. KA gerði jafntefli við ÍA í fyrstu umferðinni og ÍBV gerði jafntefli við FH í þeirri fjórðu. KA færði sig svo upp töfluna með sigri á Þór í fimmtu umferðinni, er með fjögur stig í 9. sæti deildarinnar, en ÍBV er áfram í botnsæti deildarinnar eftir 1-2 tap í fyrir Breiðabliki á heimavelli í fimmtu umferðinni.

Hlíðarfjall: Frá skærlituðum spandexgöllum til lýðheilsuparadísar

Þóroddur Ingvarsson skrifar
12. maí 2026 | kl. 20:30

Aðgengi er forsenda þess að tilheyra

Sigtryggur Ellertsson og og Júlía Júlíusdóttir skrifa
12. maí 2026 | kl. 20:00

Leikskólagjöld á Akureyri 2020 til 2026

Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
12. maí 2026 | kl. 19:30

Sterkara atvinnulíf – sterkari Akureyrarbær

Kristinn Frímann Árnason skrifar
12. maí 2026 | kl. 18:00

Látum náttúruna njóta vafans

Kristín Sigfúsdóttir skrifar
12. maí 2026 | kl. 15:35

Sjúkraflugið, Reykjavíkurflugvöllur hreint þjóðaröryggismál

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
12. maí 2026 | kl. 15:30