Tímamótaleikur Örnu Sifjar fyrir Þór/KA
Arna Sif Ásgrímsdóttir, varnarmaðurinn reyndi í liði Þórs/KA, komst í dag í fámennan hóp íslenskra knattspyrnukvenna sem hafa spilað 200 leiki fyrir eitt og sama félagið í efstu deild hér á landi.
Hún lék með Þór/KA þegar liðið gerði jafntefli, 2-2, við Stjörnuna á Þórsvellinum og þar með varð hún fyrst leikmanna Akureyrarliðsins til að spila 200 leiki með liðinu í deildinni. Hún hefur leikið tíu leikjum meira en sú næsthæsta hjá Þór/KA, Sandra María Jessen, sem nú gerir það gott með Köln í þýsku Bundesligunni.
Arna var fyrirliði Þórs/KA í þessum tímamótaleik en það kom reyndar ekki til af góðu því fyrirliðinn Hulda Björg Hannesdóttir meiddist í síðasta leik og var ekki með í dag. Arna leikur nú sitt 20. tímabil í meistaraflokki eftir að hafa spilað fyrst 14 ára gömul með Þór/KA árið 2007 en hún lék með liðinu til 2014 og var í fyrsta Íslandsmeistaraliði Akureyrarfélaganna árið 2012.

Fimmta mark Örnu Sifjar fyrir Þór/KA í efstu deild Íslandsmótsins. Hér skorar hún í 5:0 sigri á Fjölni 13. águst sumarið 2008, daginn eftir að hún varð 16 ára. Hún gerði tvö mörk sumarið áður og hafði gert tvö fyrir þennan leik sumarið 2008. Myndir: Skapti Hallgrímsson
Arna sneri aftur norður árin 2018 til 2021, og kom enn á ný í heimahagana fyrir þetta tímabil en auk þess að spila alls fimm tímabil með Val hefur hún leikið með Gautaborg í Svíþjóð, Verona á Ítalíu og Glasgow City í Skotlandi.
Sú níunda í röðinni
Arna Sif er aðeins níundi leikmaðurinn í sögu efstu deildar kvenna sem spilar 200 leiki með sama félaginu. Athyglisvert er að hinar átta koma allar frá þremur félögum, Val, Stjörnunni og KR, þar af fjórar frá Garðabæjarfélaginu. Dóra María Lárusdóttir á hins vegar flesta leiki allra fyrir eitt félag, 269 talsins fyrir Val, en hún lék ekki með öðru íslensku liði. Arna mætti einni af hinum átta í leiknum í dag því Anna María Baldursdóttir er fyrirliði Stjörnunnar þar sem hún hefur leikið allan sinn feril.

Arna Sif Ásgrímsdóttir þegar hún var kjörin Íþróttamaður Akureyrar árið 2012. Myndir: Skapti Hallgrímsson
Þá er merkilegt að Breiðablik, stórveldið í íslenskum kvennafótbolta, á enga 200 leikja konu en methafinn þar, Sigrún Óttarsdóttir, lék 179 leiki fyrir félagið.
Níu kvenna hópurinn með 200 leiki fyrir eitt félag er nú þannig skipaður, í svigum eru heildarleikir viðkomandi leikmanns í deildinni. Þar er Arna Sif ofarlega á blaði enda á hún líka að baki 75 leiki fyrir Val og er í dag fjórða leikjahæst af öllum leikmönnum deildarinnar frá upphafi.
- 269 Dóra María Lárusdóttir, Val (269)
- 237 Anna María Baldursdóttir, Stjörnunni (237)
- 218 Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, Stjörnunni (262)
- 217 Málfríður Erna Sigurðardóttir, Val (310)
- 215 Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, KR (215)
- 209 Auður Skúladóttir, Stjörnunni (219)
- 207 Rakel Logadóttir, Val (216)
- 205 Harpa Þorsteinsdóttir, Stjörnunni (252)
- 200 Arna Sif Ásgrímsdóttir, Þór/KA (275)
Tvær af fjórum leikjahæstu konunum í sögu deildarinnar, methafinn Sandra Sigurðardóttir (337) og Fanndís Friðriksdóttir (278), náðu ekki 200 leikjum með einu félagi.
Úrslitin í 3. umferðinni urðu þessi:
- Fram - Þróttur 0-3
- Valur - ÍBV 2-3
- Þór/KA - Stjarnan 2-2
- Víkingur - Breiðablik 2-4
- FH - Grindavík/Njarðvík 2-1
Staðan: Breiðablik 9, ÍBV 9, Þróttur 6, Stjarnan 4, FH 4, Grindavík/Njarðvík 3, Víkingur 3, Valur 3, Þór/KA 2, Fram 0.
Besta byrjunin í 15 ár
Nýliðar ÍBV hafa komið skemmtilega á óvart og unnið þrjá fyrstu leiki sína í deildinni, eins og Íslandsmeistarar Breiðabliks. Þetta er besta byrjun ÍBV í fimmtán ár en Eyjakonur unnu fyrstu fjóra leiki sína í deildinni árið 2011. Þá var ÍBV einmitt nýliði í deildinni, eins og nú, og annar fyrirliða Eyjaliðsins það ár var Elísa Viðarsdóttir, núverandi leikmaður Breiðabliks. Engir nýliðar í deildinni hafa byrjað eins vel á þessum fimmtán árum.

Andrea Mist Pálsdóttir fagnar marki fyrir Þór/KA gegn liði Keflavíkur sumarið 2019, til vinstri er Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir sem nú leikur með Víkingi og lagði upp mark gegn Breiðabliki í kvöld. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Andrea kunni á Akureyrarvindinn
Andrea Mist Pálsdóttir, sem er uppalin á Þórsvellinum, var liði Þórs/KA erfið í dag því hún skoraði bæði mörk Stjörnunnar gegn Akureyrarliðinu, bæði beint úr hornspyrnum þar sem hún nýtti sér vindinn. Sem hún þekkti greinilega vel! Seinna markið var 30. mark Andreu í efstu deild en af þeim eru 14 fyrir Þór/KA, 12 fyrir Stjörnuna og 4 fyrir FH. Andrea er níunda leikjahæsta konan í sögu Þórs/KA í efstu deild en engin er annarar systir í leik, svo snúið sé aðeins út úr máltækinu.
Markahæstar í deildinni
3 mörk: Allison Lowrey (ÍBV).
2 mörk: Allison Clark (ÍBV), Andrea Mist Pálsdóttir (Stjörnunni), Arnfríður Auður Arnarsdóttir (Val), Barbára Sól Gísladóttir (Breiðabliki), Erin Flurey (Þór/KA), Freyja Stefánsdóttir (Víkingi), Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (Breiðabliki), Jasmín Erla Ingadóttir (Víkingi), Sigríður Th. Guðmundsdóttir (Þrótti), Taylor Hamlett (Fram).
Allison Lowrey, sem varð markadrottning 1. deildarinnar 2025 með ÍBV, skoraði 25 mörk, og var jafnframt kjörin besti leikmaður deildarinnar, heldur sínu striki og er nú markahæst í Bestu deildinni með þrjú mörk fyrir nýliðana frá Eyjum í fyrstu þremur umferðunum.
Annar Grikkinn sem skorar
Danai Kaldaridou skoraði fyrir Grindavík/Njarðvík gegn FH í kvöld og hún er önnur gríska knattspyrnukonan til að skora í Bestu deildinni. Sú fyrsta var Calliste Brookshire sem skoraði tvö mörk fyrir Austfjarðaliðið FHL í deildinni í fyrra en þær leika báðar með landsliði Grikklands.
Næstu leikir
Fjórða umferðin er leikin á sunnudag og mánudag, 10. og 11. maí, og þar mætast ÍBV - Þór/KA, Stjarnan - FH, Breiðablik - Valur, Fram - Víkingur og Þróttur - Grindavík/Njarðvík.

Arna Sif Ásgrímsdóttir jafnar 2:2 á síðustu stundu þegar Þór/KA gerði jafntefli við Breiðablik sumarið 2021. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Aðgengi er forsenda þess að tilheyra
Leikskólagjöld á Akureyri 2020 til 2026
Sterkara atvinnulíf – sterkari Akureyrarbær
Látum náttúruna njóta vafans